fimmtudagur, 31. janúar 2008
þriðjudagur, 29. janúar 2008
T minus 53.5 hours
Staðsetning: Reykjavík.
Veður: -2°C og Hagl.
Jæja,
nú er aldeilis farið að styttast í ferðina stóru. Brottför er áætluð frá KEF 31.jan kl 17:10.
Undirbúningur hefur gengið nokkuð vel, Ommi hefur þó verið heldur duglegri en Bjarni. Það er margt sem þarf að huga að áður en lagt er í svona leiðangur og það er ansi líklegt að eitthvað gleymist og þá kemur visa kortið að góðum notum.
Við setjum inn ferðaplanið hérna áður en við leggjum í hann og reynum svo að vera duglegir að öppdeita þessa síðu.