þriðjudagur, 29. janúar 2008
T minus 53.5 hours
Staðsetning: Reykjavík.
Veður: -2°C og Hagl.
Jæja,
nú er aldeilis farið að styttast í ferðina stóru. Brottför er áætluð frá KEF 31.jan kl 17:10.
Undirbúningur hefur gengið nokkuð vel, Ommi hefur þó verið heldur duglegri en Bjarni. Það er margt sem þarf að huga að áður en lagt er í svona leiðangur og það er ansi líklegt að eitthvað gleymist og þá kemur visa kortið að góðum notum.
Við setjum inn ferðaplanið hérna áður en við leggjum í hann og reynum svo að vera duglegir að öppdeita þessa síðu.
5 ummæli:
Hehehe þetta er fullkomið nafn á heimasíðuna. Hlakka til að sjá myndirnar og lesa ferðalýsingar, það er alveg bannað að gleyma myndavélinni.
Góða ferð og góða skemmtun, Alda.
Eruð þið virkilega vissir um að Visa gangi alsstaðar?
Skotsilfur er málið og ekki matadorpeningar :-)
Gangi ykkur vel, það verður gaman að fylgjast með ævintýrinu.
Kv. Gosi
Þið eruð helvíti góðir, strax komnar þessar fínu myndir frá Ríó :)
Ætlið þið kannski að liggja fullir í Köben í þrjá mánuði og downloada myndum af Netinu? :)
Frá Inkum til grautfúlra svía,
hann ferðast um heimana nýja,
en þessi helvítis raftur
alltaf kemur hann aftur
við köllum hann Pacnho Villa
Skrifa ummæli