mánudagur, 21. apríl 2008

Galapagos og heimleið

Staðsetning: Reykjavík
Veður: 7°C og Sól.

Afsakið seinkun á bloggi en hér kemur saga síðustu daga ferðarinnar.


Eldsnemma á sunnudaginn 13. apríl var haldið til Galapagos. Flug og ferðalag gengu að óskum og frændur voru lentir á Galapagos um 09:30. Haldið var út á snekkjuna Aida Maria þar sem átti að sigla um Galapagos eyjar næstu vikuna. Strax við komuna niður á bryggju tóku sæ iguana eðlur ásamt sæljónum á móti okkur. Dýrin virtust ekki skipta sér mikið af ferðalöngunum þó að þeir færu mjög nálægt til að taka myndir.

Galapagos er algjör paradís. Dagarnir skiptust í snorkling ferðir og ferðir upp á hinar mismundandi eyjur. Báðar þessar ferðir voru aðallega til að skoða hið frábæra dýralíf sem Galapagos hefur upp á að bjóða en einnig er landslagið mörgum stöðum alveg frábært.


Á landi skoðuðu ferðalangarnir meðal annars sæljón, sæ og land eðlur, risa skjaldbökur og helling af hinum mismunandi fuglum.


Í sjónum syntum við meðal hákarla, sæskjaldbaka, sting skata, mörgæsa og mjög margra tegunda af marglitum hitabeltisfiskum.


Öll dýr hvort sem voru fuglar fiskar eða eðlur voru mjög gæf og voru ekkert að hafa áhyggjur af okkur fólkinu þó að við værum ekki í nema meters fjarlægð og stundum minna. Það var alveg frábært að synda í gegnum torfurnar af fiskunum sem gerðu voða lítið annað en að hliðra sér til nógu mikið þannig að maður kæmist framhjá þeim.


Á bátnum var mjög fínt að búa. Það var eldað handa hópnum 3 stórar máltíðir á dag og kaldur bjór beið þegar menn komu úr síðustu ferðunum. Hópurinn sem við vorum í skiptist í Breta, Þjóðverja, Indverja, Svía og Íslendinga og var þetta alveg frábær hópur. Frændunum þótti mest skrítið að allavega helmingurinn í hópnum voru ekki sérlega vel synntir og sumir ekki neitt. Frændurnir kunnu hinsvegar mjög vel við sig hvort sem er á láði eða legi og fannst þessi ferð hreint út sagt alveg frábær.

Ekki reyndist jafn auðvelt að yfirgefa galapagos og að komast þangað. Frændur lentu í því að flugvélin þeirra bilaði og töfðust þeir í hitanum á galapagos í um 3 tíma og voru ansi fegnir að komast upp á hótel í Quito.

Mánudaginn 21. apríl var svo lagt á stað til New york. Það reyndist ansi langur dagur fyrir frændurna eftir margra tíma bið á flugvöllum og 2 löng flug lentu þeir á áfanga stað um klukkan 22:30. Þessir 2 dagar í New York voru alveg frábærir og góður endir á frábæru fríi.

Þessi ferð hefur verið alveg frábær í alla staði og hefur liðið alveg ótrúlega fljótt.


Nú er bara að safna pening og fríi og fara í næstu ferð ;)

laugardagur, 12. apríl 2008

Staðsetning: Quito - 2743 metrar.

Veður: 13°C og Rigning.

Vikan hjá frændum í Cancun var nú frekar einföld. Eftir að hafa legið í leti á sunnudeginum drifu frændur sig í heilsdags lúxus ferð til Chichen Itza. Ferðin hófst þannig að glæsileg loftkæld rúta pikkaði þá upp á hótelinu rétt fyrir 8 um morgunin. Meðan á akstrinum stóð var boðið uppá morgunmat í rútunni og síðan var stoppað uppúr 10 á markaði nálægt áfangastaðnum. Eftir stoppið á markaðnum var boðið uppá Corona bjór í rútunni og nýttu frændur sér það boð vel.


Í Chichen Itza eltu frændur síðan leiðsögumann í uþb. 2 tíma sem sagði þeim allt um rústirnar og sögu þeirra. Eftir þetta röltu þeir síðan um rústirnar í hitanum og fóru síðan í mat á hóteli við hliðina á rústunum. Þegar uppí rútuna var komið biðu þeirra langþráðir kaldir Corona.

Restina af vikunni einbeittu frændur sér af því að liggja í leti. Ommi var duglegur í sólbaðinu og leit hann út eins og soðinn humar á tímabili. Bjarni afturámóti tók lífinnu rólegar og hélt sig í skugganum yfir miðjan daginn.

Í gær var síðan Cancun kvödd og flogið aftur í gegnum Panama til Quito þar sem Marriott hótelið beið þeirra frænda. Um kvöldið fengu þeir Töru í heimsókn en hún var einmitt að koma frá Galapagos þennan sama dag. Kvöldinu lauk með nokkrum bjórum og Sushi á hótelbarnum.


Í morgun vöknuðu frændur klukkan 10 og drifu sig út í gönguferð með Töru. Skoðaður var gamli bærinn og fannst Bjarna aðeins of margar kirkjur skoðaðar í ferðinni. Gönguferðinni lauk síðan uppúr 2 með þrumum, eldingum, rigningu og hagli. Frændur kvöddu Töru, en hún er að fljúga heim til London í kvöld, og drifu sig heim á hótel. Restin af deginum hefur verið róleg, Ommi slakaði á og Bjarni dreif sig í smá leiðangur.

Í kvöld á svo að fara snemma að sofa vegna þess að flogið verður til Galapagos í fyrramálið kl 7:30. Verða frændur þar um borð í Aida Maria snekkjunni framá sunnudag í næstu viku.

sunnudagur, 6. apríl 2008

Mið-Ameríka???

Staðsetning: Cancun.
Veður: 28°C og Sól.

Jæja, nú er liðin óþægilega langur tími frá síðustu færslu og eru ættingjar og vinir örugglega orðnir órólegir. Það er samt enging ástæða til þess að óttast, frændur eru einfaldlega búnir að vera alltof uppteknir til þess að standa í blogg málum.

Kvöldið eftir síðustu færslu var frekar rólegt. Frændur ásamt fleiri ferðafélögum voru töluvert slappir eftir gleðskap kvöldsins á undan og þessvegna fóru menn einfaldlega snemma í háttinn.


Daginn eftir vöknuðu frændur snemma og stukku uppí Carmen (trukkinn). Ekið var af stað inní Amazon frumskóginn og síðan tekinn bátur niður Napo ánna þar til komið var að skálanum þar sem átti að gista. Napo áin er ein af rúmlega 1100 ám sem renna í Amazon. Hún er reyndar ein af þeim stærri og vatnið sem rennur framhjá skálanum þar sem frændur gistu á eftir að renna tæplega 5000 kílómetra áður en það rennur í Atlantshafið 4 mánuðum seinna.

Þegar búið var að koma sér fyrir í skálunum var haldið í frumskógarferð, þar sem gengið var um regnskóginn, oft í töluverðum bratta og dýralífið skoðað. Þetta var töluverð svaðilför og duttu ferðalangar oft á rassgatið í brattanum og drullunni.


Á sunnudeginum var síðan haldið í aðra frumskógarferð. Bjarni valdi að sleppa ferðinni en Ommi dreif sig af stað. Gengið var í gegnum frumskóginn og endaði gangan með því að það þurfti að vaða niður litla á. Eftir þetta var haldið í dýraathvarf þar sem ýmis áhugaverð dýr voru skoðuð. Um kvöldið fengu frændur sér í glas og slóu síðan í gegn uppúr 4 um morguninn með því að vekja alla sem sváfu í skálunum með hávaða og látum.

Á mánudeginum sváfu frændur út sökum timburmanna og eftir hádegi var haldið í heimsókn í lítin bæ í nágrenninu. Þar heimsóttu menn fiðrildagarð og lærðu allt um fiðrildi. Eftir þetta skoðuðu ferðalangar tréútskurð og keramik.


Á þriðjudag var ekið af stað til Quito. Sumir ferðalangana, þar á meðal Ommi, ákváðu að síðasti ferðadagurinn væri tilefni til þess að detta í það í trukknum. Vakti þetta mismunandi mikla lukku, þar sem þessir aðilar voru orðnir vel drukknir þegar komið var til Quito. Eftir að menn höfðu komið sér fyrir á hótelinu var haldið út í lokamáltíð með hópnum. Frændur entust ekki lengi og voru farnir að sofa í kringum miðnætti.

Á miðvikudag tékkuðu frændur sig út af hótelinu og fluttu sig yfir á Marriott sem er án efa eitt flottasta hótel bæjarins. Þar nutu frændur þess að vera komin í vestræn þægindi og lúxus. Um kvöldið kom Phil síðan í heimsókn og drifu menn sig út á TGI Fridays í mat svoan bara rétt til þess að rifja upp smá vestræna menningu.


Á fimmtudag fóru frændur ásamt 5 öðrum ferðalöngum til Otavalo til að skoða markað sem er að sögn einn sá flottasti í Suður-Ameríku. Á leiðinni var keyrt yfir miðbaug og þótti frændum það ansi merkilegt að þetta var í fyrsta skipti í 2 mánuði sem þeir komu inná norðurhvel jarðar. Markaðurinn í Otavalu reyndist samt ekki standast þær væntingar sem frændur gerðu til hans og lítið varð úr verslun. Um kvöldið fóru frændur síðan út að borða með þeim ferðafélögum sem ennþá voru í Quito.

Dagurinn í gær hófst með því að frændur borðuðu frábæran morgunmat á Marriott og síðan drifu þeir sig í pott, gufu og sund. Eftir það tékkuðu þeir sig út og fengu sér Sushi í hádegismat áður en haldið var útá flugvöll. Frá Quito var flogið í gegnum Panama City til Cancum í Mexíkó. Þar tékkuðu frændur sig inná Hyatt Cancun Caribe Resort hótelið.


Í dag var sofið út og síðan farið í afslöppun við sundlaugina. Ommi baðaði sig í sólinni meðan Bjarni hélt sig undir sólhlífinni og las bók. Eftir þetta fóru frændur uppá herbergi í smá afslöppun en drifu sig síðan á alvöru Amerískt steikhús þar sem þeir borðuð steik og humarhala. Að þessu loknu fóru þeir heim á hótel til að skrifa þessa færslu og setja inn nýjar myndir. Planið er síðan að ljúka kvöldinu á hótelbarnum með einum eða tvemum köldum bjórum.

Það eina sem er búið að plana fyrir næstu viku er heilsdagsferð til að skoða Maya rústir á mánudaginn, að öðru leyti ætla frændur að slappa af og gera sem minnst. Á föstudaginn verður síðan flogið aftur til Quito og svo verður farið til Galapagos á sunnudaginn eftir viku.

Nú er farið að styttast verulega í heimferð og er frændur farið að hlakka töluvert til að komast heim aftur.