laugardagur, 12. apríl 2008

Staðsetning: Quito - 2743 metrar.

Veður: 13°C og Rigning.

Vikan hjá frændum í Cancun var nú frekar einföld. Eftir að hafa legið í leti á sunnudeginum drifu frændur sig í heilsdags lúxus ferð til Chichen Itza. Ferðin hófst þannig að glæsileg loftkæld rúta pikkaði þá upp á hótelinu rétt fyrir 8 um morgunin. Meðan á akstrinum stóð var boðið uppá morgunmat í rútunni og síðan var stoppað uppúr 10 á markaði nálægt áfangastaðnum. Eftir stoppið á markaðnum var boðið uppá Corona bjór í rútunni og nýttu frændur sér það boð vel.


Í Chichen Itza eltu frændur síðan leiðsögumann í uþb. 2 tíma sem sagði þeim allt um rústirnar og sögu þeirra. Eftir þetta röltu þeir síðan um rústirnar í hitanum og fóru síðan í mat á hóteli við hliðina á rústunum. Þegar uppí rútuna var komið biðu þeirra langþráðir kaldir Corona.

Restina af vikunni einbeittu frændur sér af því að liggja í leti. Ommi var duglegur í sólbaðinu og leit hann út eins og soðinn humar á tímabili. Bjarni afturámóti tók lífinnu rólegar og hélt sig í skugganum yfir miðjan daginn.

Í gær var síðan Cancun kvödd og flogið aftur í gegnum Panama til Quito þar sem Marriott hótelið beið þeirra frænda. Um kvöldið fengu þeir Töru í heimsókn en hún var einmitt að koma frá Galapagos þennan sama dag. Kvöldinu lauk með nokkrum bjórum og Sushi á hótelbarnum.


Í morgun vöknuðu frændur klukkan 10 og drifu sig út í gönguferð með Töru. Skoðaður var gamli bærinn og fannst Bjarna aðeins of margar kirkjur skoðaðar í ferðinni. Gönguferðinni lauk síðan uppúr 2 með þrumum, eldingum, rigningu og hagli. Frændur kvöddu Töru, en hún er að fljúga heim til London í kvöld, og drifu sig heim á hótel. Restin af deginum hefur verið róleg, Ommi slakaði á og Bjarni dreif sig í smá leiðangur.

Í kvöld á svo að fara snemma að sofa vegna þess að flogið verður til Galapagos í fyrramálið kl 7:30. Verða frændur þar um borð í Aida Maria snekkjunni framá sunnudag í næstu viku.

4 ummæli:

Unknown sagði...

Jahérna, þvílíkt ferðalag...
ég þori að lofa þér Ommi eftir allt þetta ferðalag og stanslaust menningar input, að þú mannst ekki lengur hvernig á að trunka á milli svissa!! það býður þín sérvalið ccna námskeið hérna í Nýherja þegar þú kemur heim ;) Verst að ég verð farinn í annað fyrirtæki en þú spjarar þig.. Have fun.. :-P
Kv, TGT Titan

Nafnlaus sagði...

bara nokkrir dagar:-)

Nafnlaus sagði...

kva..létu frændurnir lífið á galapagos??? á ekkert að blogga fyrr en um jólin??

Nafnlaus sagði...

Velkomnir heim ;)
Við sem höfum verið með ykkur á þessu ferðalagi í allan þennan tíma óskum eftir því að þið "bloggið" um Galapagos og ferðalokin.
Jamm,,,,, annað væri ekki sanngjarnt.