sunnudagur, 6. apríl 2008

Mið-Ameríka???

Staðsetning: Cancun.
Veður: 28°C og Sól.

Jæja, nú er liðin óþægilega langur tími frá síðustu færslu og eru ættingjar og vinir örugglega orðnir órólegir. Það er samt enging ástæða til þess að óttast, frændur eru einfaldlega búnir að vera alltof uppteknir til þess að standa í blogg málum.

Kvöldið eftir síðustu færslu var frekar rólegt. Frændur ásamt fleiri ferðafélögum voru töluvert slappir eftir gleðskap kvöldsins á undan og þessvegna fóru menn einfaldlega snemma í háttinn.


Daginn eftir vöknuðu frændur snemma og stukku uppí Carmen (trukkinn). Ekið var af stað inní Amazon frumskóginn og síðan tekinn bátur niður Napo ánna þar til komið var að skálanum þar sem átti að gista. Napo áin er ein af rúmlega 1100 ám sem renna í Amazon. Hún er reyndar ein af þeim stærri og vatnið sem rennur framhjá skálanum þar sem frændur gistu á eftir að renna tæplega 5000 kílómetra áður en það rennur í Atlantshafið 4 mánuðum seinna.

Þegar búið var að koma sér fyrir í skálunum var haldið í frumskógarferð, þar sem gengið var um regnskóginn, oft í töluverðum bratta og dýralífið skoðað. Þetta var töluverð svaðilför og duttu ferðalangar oft á rassgatið í brattanum og drullunni.


Á sunnudeginum var síðan haldið í aðra frumskógarferð. Bjarni valdi að sleppa ferðinni en Ommi dreif sig af stað. Gengið var í gegnum frumskóginn og endaði gangan með því að það þurfti að vaða niður litla á. Eftir þetta var haldið í dýraathvarf þar sem ýmis áhugaverð dýr voru skoðuð. Um kvöldið fengu frændur sér í glas og slóu síðan í gegn uppúr 4 um morguninn með því að vekja alla sem sváfu í skálunum með hávaða og látum.

Á mánudeginum sváfu frændur út sökum timburmanna og eftir hádegi var haldið í heimsókn í lítin bæ í nágrenninu. Þar heimsóttu menn fiðrildagarð og lærðu allt um fiðrildi. Eftir þetta skoðuðu ferðalangar tréútskurð og keramik.


Á þriðjudag var ekið af stað til Quito. Sumir ferðalangana, þar á meðal Ommi, ákváðu að síðasti ferðadagurinn væri tilefni til þess að detta í það í trukknum. Vakti þetta mismunandi mikla lukku, þar sem þessir aðilar voru orðnir vel drukknir þegar komið var til Quito. Eftir að menn höfðu komið sér fyrir á hótelinu var haldið út í lokamáltíð með hópnum. Frændur entust ekki lengi og voru farnir að sofa í kringum miðnætti.

Á miðvikudag tékkuðu frændur sig út af hótelinu og fluttu sig yfir á Marriott sem er án efa eitt flottasta hótel bæjarins. Þar nutu frændur þess að vera komin í vestræn þægindi og lúxus. Um kvöldið kom Phil síðan í heimsókn og drifu menn sig út á TGI Fridays í mat svoan bara rétt til þess að rifja upp smá vestræna menningu.


Á fimmtudag fóru frændur ásamt 5 öðrum ferðalöngum til Otavalo til að skoða markað sem er að sögn einn sá flottasti í Suður-Ameríku. Á leiðinni var keyrt yfir miðbaug og þótti frændum það ansi merkilegt að þetta var í fyrsta skipti í 2 mánuði sem þeir komu inná norðurhvel jarðar. Markaðurinn í Otavalu reyndist samt ekki standast þær væntingar sem frændur gerðu til hans og lítið varð úr verslun. Um kvöldið fóru frændur síðan út að borða með þeim ferðafélögum sem ennþá voru í Quito.

Dagurinn í gær hófst með því að frændur borðuðu frábæran morgunmat á Marriott og síðan drifu þeir sig í pott, gufu og sund. Eftir það tékkuðu þeir sig út og fengu sér Sushi í hádegismat áður en haldið var útá flugvöll. Frá Quito var flogið í gegnum Panama City til Cancum í Mexíkó. Þar tékkuðu frændur sig inná Hyatt Cancun Caribe Resort hótelið.


Í dag var sofið út og síðan farið í afslöppun við sundlaugina. Ommi baðaði sig í sólinni meðan Bjarni hélt sig undir sólhlífinni og las bók. Eftir þetta fóru frændur uppá herbergi í smá afslöppun en drifu sig síðan á alvöru Amerískt steikhús þar sem þeir borðuð steik og humarhala. Að þessu loknu fóru þeir heim á hótel til að skrifa þessa færslu og setja inn nýjar myndir. Planið er síðan að ljúka kvöldinu á hótelbarnum með einum eða tvemum köldum bjórum.

Það eina sem er búið að plana fyrir næstu viku er heilsdagsferð til að skoða Maya rústir á mánudaginn, að öðru leyti ætla frændur að slappa af og gera sem minnst. Á föstudaginn verður síðan flogið aftur til Quito og svo verður farið til Galapagos á sunnudaginn eftir viku.

Nú er farið að styttast verulega í heimferð og er frændur farið að hlakka töluvert til að komast heim aftur.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Gott að heyra frá ykkur! Góð ferðasaga og myndir eins og venjulega, nú er um að gera að slappa af við ströndina og ná ykkur niður fyrir næstu ferð. Það væri ekki leiðinlegt að vera þarna með ykkur við sjóinn og flatmaga í sólinni. Það er en snjór og kuldi hér hjá okkur.
Pabbi og mamma

Nafnlaus sagði...

já við værum sko alveg til í að liggja á strönndinni með ykkur:-) bara geðveikt, njótið þess nú að hafa það gott og gera ekki neitt, það verður sko erfitt að byrja að vinna aftur eftir svona letifrí:-)

Dröfn og grísirnir 3

Nafnlaus sagði...

helló láttu mig vita þegar þú ferð næst á msn, þarf að biðja þig um smá greiða þegar þú kemur til NEW YORK :-)
hann er ekkert rosalega stór, heheh

Nafnlaus sagði...

þetta var Dröfn :-)