Veður: 7°C og Sól.
Afsakið seinkun á bloggi en hér kemur saga síðustu daga ferðarinnar.
Eldsnemma á sunnudaginn 13. apríl var haldið til Galapagos. Flug og ferðalag gengu að óskum og frændur voru lentir á Galapagos um 09:30. Haldið var út á snekkjuna Aida Maria þar sem átti að sigla um Galapagos eyjar næstu vikuna. Strax við komuna niður á bryggju tóku sæ iguana eðlur ásamt sæljónum á móti okkur. Dýrin virtust ekki skipta sér mikið af ferðalöngunum þó að þeir færu mjög nálægt til að taka myndir.
Galapagos er algjör paradís. Dagarnir skiptust í snorkling ferðir og ferðir upp á hinar mismundandi eyjur. Báðar þessar ferðir voru aðallega til að skoða hið frábæra dýralíf sem Galapagos hefur upp á að bjóða en einnig er landslagið mörgum stöðum alveg frábært.
Á landi skoðuðu ferðalangarnir meðal annars sæljón, sæ og land eðlur, risa skjaldbökur og helling af hinum mismunandi fuglum.
Í sjónum syntum við meðal hákarla, sæskjaldbaka, sting skata, mörgæsa og mjög margra tegunda af marglitum hitabeltisfiskum.
Öll dýr hvort sem voru fuglar fiskar eða eðlur voru mjög gæf og voru ekkert að hafa áhyggjur af okkur fólkinu þó að við værum ekki í nema meters fjarlægð og stundum minna. Það var alveg frábært að synda í gegnum torfurnar af fiskunum sem gerðu voða lítið annað en að hliðra sér til nógu mikið þannig að maður kæmist framhjá þeim.
Á bátnum var mjög fínt að búa. Það var eldað handa hópnum 3 stórar máltíðir á dag og kaldur bjór beið þegar menn komu úr síðustu ferðunum. Hópurinn sem við vorum í skiptist í Breta, Þjóðverja, Indverja, Svía og Íslendinga og var þetta alveg frábær hópur. Frændunum þótti mest skrítið að allavega helmingurinn í hópnum voru ekki sérlega vel synntir og sumir ekki neitt. Frændurnir kunnu hinsvegar mjög vel við sig hvort sem er á láði eða legi og fannst þessi ferð hreint út sagt alveg frábær.
Ekki reyndist jafn auðvelt að yfirgefa galapagos og að komast þangað. Frændur lentu í því að flugvélin þeirra bilaði og töfðust þeir í hitanum á galapagos í um 3 tíma og voru ansi fegnir að komast upp á hótel í Quito.
Mánudaginn 21. apríl var svo lagt á stað til New york. Það reyndist ansi langur dagur fyrir frændurna eftir margra tíma bið á flugvöllum og 2 löng flug lentu þeir á áfanga stað um klukkan 22:30. Þessir 2 dagar í New York voru alveg frábærir og góður endir á frábæru fríi.
Þessi ferð hefur verið alveg frábær í alla staði og hefur liðið alveg ótrúlega fljótt.
Nú er bara að safna pening og fríi og fara í næstu ferð ;)
3 ummæli:
Alveg frábært að fylgjast með þessari ferð ykkar, alger draumur, vá hvað ég fer að safna núna!
En velkomnir heim í rútínuna.
Kv, Heiða (hans Tryggva).
velkomnir heim og til hamingju þessar frábæru minningar í safnið ykkar.
kv ingibjörg sem hefur fylgst grant með ferðum ykkar....
ps. getið þið upplýst hvar þið fengið upplýsingar um hópinn sem þið ferðuðust með?
Sælir félagar.
Gaman að fá að fylgjast með þessu ferðalagi ykkar.
Bjórinn var ekkert vondur í Soho Manhattan Ommi??
Kv.
Öggi
Skrifa ummæli