Veður: 27°C og Sól.
Á annan í páskum vöknuðu frændur snemma og keyrt var til Punta Sal sem er mjög lítill strandbær nyrst í Perú. Þangað var komið rétt fyrir sólsetur. Frændur komu sér fyrir í nokkuð góðu herbergi og síðan var borðaður matur og slappað af fram eftir kvöldi.
Daginn eftir vöknuðu menn um 10 leitið og drifu sig í sólbað á ströndinni. Þegar steikingu var lokið skelltu frændur sér í sjóinn og léku sér í öldunum. Eftir þetta var borðaður léttur hádegismatur og síðan tekin smá síesta. Eftir blundinn skelltu menn sér aftur í sjóinn og léku sér innan um stökkvandi fiska og fugla. Um kvöldið tóku Dave og Bob sig til og grilluðu ofan í hópin við góðar undirtektir. Eftir grillið smökkuðu menn síðan vatnsmelónu sem Bob hafði fyllt með vodka og féll hún mismunandi vel í kramið. Bjarni var frekar óheppinn með skordýrin og var bitinn 8 sinnum í vinstra handarbak sem varð til þess að hendin blés töluvert út en hún er farin að lagast núna.
Á miðvikudag var keyrt af stað til Ekvador. Þetta var langur dagur og voru menn ekki komnir til Cuenca í Ekvador fyrr en eftir myrkur. Þar var farið á Sushi veitingastað og borðuðu menn góðan mat og drukku bjór. Ekki var tekið á því vegna þess að dagurinn eftir átti að vera mjög langur.
Í gær var lagt af stað kl 5:00 til Banos. Búist var við að ferðin myndi taka ca. 14 tíma vegna þess að einhverjir vegir á leiðinni voru lokaðir. Þetta reyndist ekki vera rétt og voru menn komnir á áfangastað uppúr fjögur. Fyrir ofan Banos er eldfjall sem er búið að vera að spúa ösku síðan 1999 og gýs annaðslagið. Þetta gerir það að verkum að ekki er talið öruggt að gista í bænum sjálfum. Gististaðurinn sem ferðalangarnir eru á er uþb. 20 mínútur fyrir utan sjálfan bæin og aðeins fjær sjálfu eldfjallinu.
Í gærkvöldi var boðið uppá flotta grillveislu og dönsuðu menn síðan uppá borðum fram eftir nóttu. Einn af ferðafélögum frænda á afmæli í dag og var því fagnað mikið strax uppúr miðnætti.
Í dag vöknuðu frændur smá timraðir uppúr 10 og drifu sig í bæinn til að fá sér einhvern mat og komast á internetbúllu. Seinnipartin er stefnan sett á að fara nær eldfjallinu og reyna að ná góðum myndum.
Á morgun verður síðan keyrt inní Amazon skógin og gist þar í 3 nætur. Síðan verður keyrt til Quito á þriðjudag og lýkur Dragoman ferðinni þar á miðvikudagsmorgun.
8 ummæli:
Þetta er ekki smá eldfjall sem þig eruð undir, en héldu ekki allir að það væri komi gos þegar þig fóruð að dans upp á borðum hehe. Þið veðið nú að passa ykkur í frumskóginum þar hljóta að vera margar pöddur sem geta stungið, rosalegt að sjá hendin á Bjarna. Skemmtið ykkur nú vel í þessum síðasta áfanga.
Pabbi og mamma í sveitinni
Ég kíki reglulega og hef mjög gaman af að lesa um þetta stórkostlega ævintýri ykkar.
Bestu kveðjur.
Bryndís á Ölkeldu
hmmm.... hvað varð um þessa fyrirætluðu "fjallgöngu-ferð" til Suður Ameríku....Af frásögnum að dæma eru "þeir frændur" á margra vikna fylleríi þar sem þeim er ekið á milli staða og helsta afþreyingin er að dansa upp á borðum
það verður vonandi pláss á Vogi þeir þeir snúa aftur sólbrendir með sveittan skalla og bjórvambir :-)
Takk annars fyrir skemmtilegt blogg
Rúnar
kúl
Hvað er málið með Bjarna og skordýr..? :)
Mummi, þarftu að spyrja?
Við sem þekkjum Bjarna vitum hvað hann er lang, lang, lang bestur og því ekki að undra þetta með skordýrin.
Fjallganga? það dugar sumum að ganga Gilið á Akureyri til að fara í fjallgöngu, aðrir láta sig hafa það að ganga Bankastræti og Laugarveg upp í móti en með góðum stoppum (til að fá sér einn) og alltaf er maður að þessu til að bæta heilsuna ;)
Kv. Ragna Ívars.
Sælir félagar
Sá þessa færslu á vísir.is, sem btw ég var ekki að skoða í vinnutímanum :)
http://www.visir.is/article/20080401/FRETTIR05/80401045
Spurning hvort þið komið nokkuð með hálsmen með ykkur til baka.
Kveðja
Doddi
jæja er ekki kominn tími á nýtt blogg eða eruð þið frændur bara í bjórnum þessa dagana:-)
ég kíkti á bankadraslið og það er allt í góðum málum, mér finnst þið eyða heldur miklu og eruð sem betur fer búnir að toppa mig nokkrum sinnum:-)
en annars knús í krús hlökkum til að sjá ykkur eftir nokkra daga:-)
Dröfn, Máni og brjáluðu skessurnar
Skrifa ummæli