Veður: 18°C og Hálfskýjað.
Á sunnudaginn vöknuðu menn snemma og lögðu á stað áleiðis til La Paz. Um 20 km fyrir utan Potosi fóru að heyrast óhljóð úr trukknum þannig að stoppað var til að athuga hvað væri að. Vandamálið reyndist vera að drifskaftið var bilað eða öllu heldur liðurinn við aftari hásinguna. Ekki voru menn með réttan varahlut þannig að trukkurinn var dreginn í bæinn aftur og allt leit út fyrir að menn yrðu aðra nótt í Potosi. Vandamálið við þetta var að frændur ásamt fleira fólki í hópnum voru búnir að bóka fjallahjólaferð niður hættulegasta veg í heimi og ef frændur yrðu lengur í Potosi þá yrði ekkert af þessari ferð.
Nú voru góð ráð dýr. Einhverjum snillingnum í ferðinni datt í hug að athuga með rútu sem mundi ganga yfir nóttina frá Potosi til La Paz og úr varð að 13 úr hópnum lögðu af stað um 8 um kvöldið í 10 tíma rútuferð til La Paz. Rútuferðin gekk eins og í sögu. Besta rúta sem frændur hafa nokkurntíman komið í og svefnpillur auðvelduðu svefn.
Komið var til La Paz um 6:30 um morguninn en fjallahjólaferðin byrjaði um klukkan 7:30. Ferðin er um 64 km og helmingurinn af henni er um hættulegasta veg í heimi. Lagt var af stað í 4700 metra hæð og endaði vegurinn í 1150 metra hæð. Vegurinn hangir utan í fjallsbrún með upp í 600 metra hengiflug á vinstri hlið. Vandamálið var að þar sem ferðalangar eru að hjóla niður veginn þá þurfa þeir að hjóla vinstra megin á veginum og þá er ekki nema kanski 1 - 2 metrar fram af hengifluginu á mörgum stöðum.

Fjallahjólaferðin gekk slysalaust þrátt fyrir að frændur hafi farið ansi hratt á köflum. Þegar niður veginn var komið fóru menn í dýraathvarf þar sem farið var í sturtu og borðaður matur innan um villta apa og páfagauka. Eftir matinn tók við 3 tíma akstur til La Paz og voru menn komnir heim á hótel um hálf níu.
Í dag skoðu frændur borgina, en hún er alveg ótrúleg. Hæðarmunurinn á hæsta hluta borgarinnar og þeim lægsta er 800 metrar og er borgin stéttarskipt eftir hæð þannig að ríkasta fólkið býr neðst en það fátækasta á sléttunni fyrir ofan (El Alto). Frændur fóru tveir saman í 1,5 klst skoðunarferð með enskumælandi ökumanni, og borguðu fyrir þetta litlar 900kr. Ökumaður var svo himinlifandi þegar hann fékk 450kr í tips.
Á morgun verður haldið til Copacabana sem er við Titicaca vatn. Nú er farið að styttast í inka slóðann og hlakka frændur ótrúlega mikið til.
4 ummæli:
vá vá, ok ég hefði bara dáið úr lofthræðslu og það er gott að þið sluppuð í geggnum þetta heilir á húfi, Ommi ertu alveg viss um að þú sagðir mömmu frá þessum hluta ferðarinnar:-) hehehe
En ég var að senda þér póst allt í góðum m´laum sem ég átti að ath fyrir þig:-)
Hlakka til að lesa meira:-)
Dröfn systir
Hæ gæ!!
Það er eins gott að vera ekki mikið lofthræddur á þessu ferðalagi ykkar, ég gæti þetta ekki :) en frábært að sjá hvað þið voruð flottir þarna.
Enn og aftur þúsund þakkir fyrir að skrifa ferðasögu ykkar og takk fyrir allar myndirnar.
Love, Ragna.
VÁHHHHHHH..Ég get bara ekki sagt meira váhhhh..Gangi ykkur vel elsku frændur mínir.. Hugsa til ykkar...KV Bjarni Frændi...
Þið eruð rosalegir! :)
Kveðjur úr örugga litla Agureyris.
Skrifa ummæli