Veður: 20°C og Sól.

Meðan Bjarni kláraði síðustu bloggfærslu kíkti Ommi á næturlífið í La Paz og mætti heim á hótel hálf skakkur klukkan að verða 6. Sem betur fer fyrir Omma var stutt ferðalag daginn eftir til bæjar sem heitir Copacabana sem er við strendur Titicaca vatns. Ferðalagið var mjög skemmtilegt sökum magnaðs landslags. Titicaca vatn er hæsta stóra stöðuvatn í heimi. Copacabana er mjög rólegur hippabær og voru þreyttir og smá þunnir ferðalangarnir fegnir að koma á óvenju flott hótel.

Dagurinn í dag var tekinn snemma og haldið var út á Sólar eyjuna en hún er stærsta eyjan á vatninu. Eyjan hefur mikla sögulega merkingu því frá henni eiga að hafa komið fyrstu Inkarnir. Gangan um eyjuna var un 11 kílómetrar og fór úr 3800 í um 4000 metra. Fundu frændur aðeins fyrir súrefnisskorti en annars var gangan alveg mögnuð, útsýni og veður frábært.
Á morgun kveðja frændur Bólivíu og halda yfir til Perú og nú fer að styttast í Inkaslóðina.
3 ummæli:
Þolinmæðin þrautir vinnur,,,,,
það borgaði sig að bíða eftir bloggi og myndum enda geðveikar að sjá.
Ég hef bara áhyggjur af einu, það getur verið erfitt að halda jafnvægi á hjóli, að ganga beint og vera cool ef maður er ýmist skakkur eða þunnur :)
Góða skemmtun og njótið þess að ferðast saman.
Stuðbolta kveðjur að heiman.
Ragna Ívars.
Snildar myndir. Greinilega margt að sjá þarna, alla vega minni snjór en á Akureyri :)
kv.
BHMV
p.s. datt nú í huga að eitthvað kjötmeti finndist á leiðinni :)
Ekki slæmt....
Djöfull ertu harður á djamminu félagi Ombre, þumall fyrir það..
kv
Öggi
Skrifa ummæli