miðvikudagur, 19. mars 2008

Staðsetning: Arequipa - 2380 metrar.
Veður: 25°C og Sól.

Nú er frekar langt um liðið frá síðustu bloggfærslu en það var ekki hægt að varast vegna þess hversu mikið hefur verið að gerast hjá frændum.

Á mánudag fyrir viku voru menn ræstir snemma og lagt af stað í inkaslóðann. Fyrsti dagurinn fór í það að koma sér til Quisharani sem er bærinn þar sem gangan hefst. Á leiðinni voru tvær inkarústir í helga dalnum skoðaðar, Saksamaa við Cusco og svo rústir ofan við bæinn Pisac. Eftir að rústirnar voru skoðaðar fóru menn í hádegismat í Pisac og vakti það mikla hrifningu hjá frændum að grænmetissúpan bragðaðist nánast eins og Íslensk kjötsúpa. Eftir hádegi var síðan ekið til Quisharani sem er mjög lítið og fátækt þorp í 3700 metra hæð í Andesfjöllunum. Síðan var sofið var í góðum tjöldum um nóttina.

Á þriðjudeginum voru menn ræstir klukkan 5:30 og öllum fært kókate í tjöldin, en það þykir einmitt mjög góð vörn gegn hæðaveiki. Eftir morgunmat var síðan lagt af stað í gönguna. Vegna þess að nú er regntíminn að enda var slóðinn mjög blautur og þurftu menn að vaða drullu töluverðan hluta úr leiðinni. Gengið var uppímóti í uþb 3 tíma og skarðið sem farið var yfir er 4452 metra hátt. Voru frændur ótrúlega sprækir í brattanum, gengu frekar hægt en héldu stöðugum hraða. Ekki er hægt að neita því að loftið var orðið ansi þunnt í þessarri hæð og þurftu menn aðeins að hafa fyrir hlutunum.


Eftir skarðið lá leiðinn niðurímóti og þá versnaði ástandið aðeins. Mikil drulla var á leiðinni og eftir aðeins 5 mínútna gögnu flaug Ommi á hausinn og tvíbraut annan göngustafinn sinn, hann átti síðan eftir að detta aftur í drullunni en varð ekki meint af. Bjarni hinsvegar náði að klöngrast niður nánast alla leið óhappalaust en flaug síðan næstum á hausinn á lokakaflanum og tognaði líttillega í baki. Göngunni lauk síðan í Cancha Cancha sem er annar fátækur bær. Þar fóru menn í það að mála skólann og smíða litla ruslageymslu, en það er hluti af þeirri starfsemi sem Dragoman stendur fyrir á svæðinu til að hjálpa infæddum.

Meðan Bjarni var að mála fór Ommi niður að jökulánni sem rennur til hliðar við þorpið til að þvo drulluna af fínu vatnsheldu buxunum sínum eftir gönguna. Gekk það ágætlega til að byrja með. Engu að síður vildi Ommi ná meira af drullunni af buxunum og ætlaði að láta stauminn í ánni redda þessu. Þetta hefði verið rosalega gott plan hefði hann ekki misst buxurnar í ánna. Nú þurfti að bregast hratt við. Án þess að hika hljóp Ommi um 10 metra niður eftir ánni og stökk útí og rétt náði að góma buxurnar. Mun þetta vera talið það heimskulegasta sem gerst hefur í ferðinni hingað til. Eftir kvöldmat var farið snemma að sofa vegna þess að langur dagur var framundan.


Á miðvikudeginum voru ferðalangar ræstir klukkan 5:00 með kókatei en útlitið var heldur verra en daginn áður. Það hafði snjóað töluvert um nóttina og mátu leiðsögumenn ástandið þannig að ekki væri hægt að hætta á að ganga yfir næsta skarð sem er í 4800 metra hæð. Ákveðið var að nota plan B og gengið niður dalinn og gista við heita hveri. Ákváðu frændur að sleppa þessu og reyna þess í stað að komast degi fyrr til Machu Picchu. Uppúr hádegi tóku þeir lókalrútu til Ollantaytambo sem er bær á leiðinni til Machu Picchu. Ollantaytambo reyndist vera mjög flottur bær með Inkarústum í hlíðunum fyrir ofan. Um kvöldið var farið á lítin bar sem var með Reggae þema og sátu menn þar í hengirúmum og höfðu það gott.

Á fimmtudeginum sváfu frændur til 10:00 en síðan var haldið í morgunmat og svo tekin lest til Aguas Calientes sem er bær sem er beint neðan við Machu Picchu. Þar tjékkuðu frændur sig inná Presidente hótelið og tóku síðan rútu upp til Machu Picchu en vegurinn þangað upp er sá brattasti sem þeir hafa upplifað. Þegar upp var komið var farið að hellirigna en frændur skoðuðu rústirnar í einn og hálfan tíma og plönuðu hvað þeir ætluðu að gera morgunin eftir. Um kvöldið var síðan farið út að borða á ágætis stað og svo farið snemma í bólið.


Á föstudeginum vöknuðu frændur klukkan 4:30, fóru í morgunmat og tóku síðan fyrstu rútu upp til Machu Picchu kl 5:30. Frændur voru með fyrstu mönnum á svæðið og flýttu sér upp að besta útsýnispunktinum og náðum vægast sagt góðum myndum af rústunum. Restin af hópnum kom síðan kl 9:00 en þau höfðu gist í Ollantaytambo um nóttina og tekið fyrstu lest um morguninn. Áætlunin hjá þeim frændum reyndist vera ansi góð vegna þess að þegar hópurinn mætti á svæðið voru skýin búinn að hylja borgina og náðu fæstir eins góðum myndum og frændur. Seinni partinn var síðan lestin tekin til baka til Ollantaytambo og þar beið rúta sem tók allan hópin aftur til Cusco.


Þegar til Cusco var komið fór hópurinn saman út að borða vegna þess að nokkrir voru að fara heim á laugardeginum. Eftir matinn föru þeir öflugust á djammið og dreif Ommi sig með þeim en Bjarni valdi að vera rólegur. Ommi rambaði síðan frekar skakkur inná hótelherbergi milli 6 og sjö morguninn eftir.

Á laugardeginum vaknaði Bjarni snemma og dreif sig í morgunmat og nudd. Eftir þetta var bærinn skoðaður og síðan notaði hann tímann til að hringja heim í Þóru. Á meðan á þessu stóð svaf Ommi til 12 en dreif sig síðan út með öðrum ferðalöngum, fór í brunch og skrapp svo á markaðinn. Eftir þetta fór hann svo líka í nudd. Um kvöldið fóru frændur út að borða á góðan stað til að kveðja Cusco.

Á sunnudeginum vöknuðu menn kl 5:30 og átti að leggja af stað kl 6:30. Þetta klikkaði vegna þess að einhverjir ferðalangar sváfu yfir sig og komust menn ekki af stað fyrr en uppúr 7. Stuttu utan við Cusco losnaði síðan slanga í kælikerfinu á Carmen og töfðust menn um annan klukkutíma sökum þessa. Ferðin gekk vel að öðru leiti en menn voru ekki komnir til Chivay fyrr en um 9 um kvöldið vegna tafana sem höfðu orðið um morguninn. Hópurinn dreif sig í mat og svo fóru menn beint í bólið.


Í gær var haldið af stað kl 6:00 og keyrt uppí Colca gljúfrið sem er helmingi dýpra en miklagljúfur. Þar skoðuðu menn kondórfugla en það er óhætt að segja að það hafi verið mikil lífsreynsla að sjá þessa risavöxnu fugla fljúga rétt fyrir ofan höfuð þeirra frænda. Eftir þetta var síðan keyrt til Arequipa. Þegar þangað var komið var farið út að borða og smökkuðu menn naggrís í fyrsta skipti.

Í dag vöknuðu frændur kl 9:30, drifu sig í morgunmat og fóru svo í stórmarkað til að versla morgun og hádegismat sem þeir eiga að útbúa fyrir hópin eftir 3 daga. Eftir þetta skelltu þeir sér í sólbað en Arequipa er fyrsti heiti staðurinn sem þeir koma til síðan í Argentínu. Eftir hádegi fóru þeir svo og skoðuðu miðbæinn og slöppuðu af. Síðan var haldið á internetbúllu til að setja inn myndir og skrifa þessa bloggfærslu. Í kvöld ætla þeir að reyna að finna góðan veitingastað með útsýni yfir aðaltorg bæjarins.

Í fyrramálið verður svo lagt snemma af stað til næsta áfangastaðar. Frændur setja stefnuna á að láta ekki líða eins langann tíma að næstu færslu.

Hér fyrir neðan er dagskráin eins og hún er í dag:

19. mars - Keyrt til Nasca og tjaldað um kvöldið.
20. mars - Nasca línurnar skoðaðar úr lofti og gist undir berum himni útí eiðimörk.
21. mars - Bátsferð og keyrt til Lima.
22. mars - Keyrt til Hunchaco.
23. mars - Páskadagur - Chan chan og pýramíðar skoðaðir.
24. mars - Keyrt til Punta Sal og gist í tjaldi á ströndinni.
25. mars - Frír dagur í Punta Sal, afslöppun á ströndinni.
26. mars - Keyrt til Cuenca í Ecuador.
27. mars - Keyrt til Banos og gist í tjaldi.
28. mars - Frír dagur í Banos.
29. mars - Keyrt inní Amazon skóginn og gist í skálum.
30. mars - Skógarferð.
31. mars - Skógarferð.
1. apr - Keyrt til Quito.
2. apr - Trukkaferðin endar formlega í Quito.
3. apr - Quito skoðað.
4. apr - Flogið til Cancun í Mexíkó :)
11. apr - Flogið til Quito.
12. apr - Quito skoðað.
13. apr - Galapagos ferð hefst.
20. apr - Galapagos ferð endar.
21. apr - Flogið til New York.
22. apr - New York skoðað.
23. apr - New York skoðað og flogið heim um kvöldið.
24. apr - Sumardagurinn fyrsti - Home sweet home.


9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Eins og áður - Geðveikar myndir!!!
Kv Þóra Kristín

Nafnlaus sagði...

Þetta ferðalag er greinilega rosaleg lífsreynsla og mikil upplifun. Það er gaman að fylgjast með ykkur frá klakanum gamla og góða :-)

Nafnlaus sagði...

Gaman að lesa þetta og skoða myndirnar.
Ommi hvað er þetta með þig og stafi þeir brotna hjá þér í hverri ferð og buxurnar hljóta að gullbuxur.
Kveðja
Pabbi

Nafnlaus sagði...

Hey komon hvað haldið þið að við séum Bjarni að sofa snemma!!!!! djö sennilegt það þá er nú bleik brugðið.Annars flottar myndir og gott að heyra frá ykkur,er nú ekki hissa þó að kondorinn sveimi yfir ykkur "hlaðborðonum"hee bara smá grín til ykkar,annars heyrumst fljótlega..
Kv Haffi og Anna systir og frænka

Nafnlaus sagði...

...ekki koma heim aftur, evran er í 122 kr við erum að fara á hausinn!!!

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ! erum hér fjölskyldan í lækjarvaðinu erum að fylgjast með ykkur. Kveja úr besta hverfinu...

Nafnlaus sagði...

geðveikar myndir og greinilega alveg frábær ferð:-)
allt gott að frétta héðan, við erum fyrir norðan hjá gömlu, fórum í mat til Huldu og Halla í gær og þá var trivalið spilað að venju, og ótrúlegt en satt þá var pabbi ekki komin í lið með konunum og Halli var enn vakandi eftir að einni koniak var slátrað:-)hehe
en Mána finnst þetta ekkert skrítið með stafinn, þú ert soddan böðull:-) og ég held að þú sért búin að horfa of mikið á hann Homer Simpson félaga þinn, því þetta atriði með buxurnar á alveg heima þar:-) hehe

en knús og kossar frá okkur..

Dröfn og CO

Nafnlaus sagði...

í planinu segið þið Quito - Mexico - Quito - Galapagos..... þó við séum á íslandi þá veit ég að það er langt á milli Equador og Mexikó..... flottar myndir og gaman að fylgjast með ykkur. Farið varlega og njótið páskanna.
með kveðju,
ingibjörg

Nafnlaus sagði...

Þetta er glæsileg ferð. Haldið áfram að skemmta ykkur vel. Ég sé að Bjarni mætir ekki á A-B fund á fimmtudag (17.4).

kv

T