Veður: 20°C og Sól.
Eftir síðustu bloggfærslu fóru frændur frekar snemma að sofa til að ná að hvílast aðeins. Það hefur komið í ljós að í svona mikilli hæð þurfa þeir töluvert meiri svefn en þeir eru vanir.
Á miðvikudagsmorgun vöknuðu menn snemma til að mæta í morgunmat á hótelinu. Haldið var af stað uppúr 8 eða þegar náðist að draga djammdýrin í ferðinni á fætur. Við tók 9 tíma ferðalag í gegnum ótrúlegt landslag háslétta Bólívíu. Fóru menn uppí uþb 4300 metra hæð á leiðinni. Komið var til Uyuni um 5 leitið og tjekkuðu menn sig inná fínasta hótel þar í bæ. Um kvöldið var farið út að borða á Minuteman Pizza, en sá pizzustaður fullyrðir að hann sé sá besti í suður ameríku og pizzurnar voru góðar eftir því.
Eftir að hafa sofið í um 3670 metra hæð var haldið í jeppaferð um umhverfi Uyuni. Fyrst var haldið að smá vatni sem hafði myndast nýlega í rigningunum og sáu menn þar Andesfjalla Flamingóa. Eftir það var skoðuð saltverksmiðja þar sem var synt hvernig salt er unnið á saltsléttunum. Síðan voru skoðaðar uþb 500 ára gamlar múmíur og borðaður fínasti hádegismatur. Eftir hádegi var haldið útá saltslétturnar og skoðað salthótel sem þar er að finna og einnig skoðaðar aðstæður námumanna þar. Það kom frændum á óvart að það væri yfirleitt hægt að vinna þarna úti, þar sem flestir ferðalangar voru komnir með rafsuðublindu eftir aðeins nokkurra tíma vera á sléttunum. Frændur gáfur nokkur pör af sólgleraugum til söfnunar sem síðan gefur námumönnum gleraugun. Sjónin hjá námumönnunum endist í 1 ár án gleraugna en í uþb. 10 ár með gleraugum. Jeppaferðin endaði svo með því að það var heimsóttur lestarkirkjugarður og biðu menn eftir sólsetrinu þar.
Á föstudeginum var síðan keyrt frá Uyuni til Potosi. Þessi akstur tók uþb 7 tíma og er óhætt að segja að frændur séu orðnir nett leiðir á öllum þessum akstri. Seinnipartinn var komið til Potosi sem er námubær og hæsta borg veraldar.
Dagurinn í dag var frekar rólegur. Frændur vöknuðu í seinni kantinum (hæðin er farin að segja til sín) og var farið í leiðangur til að skoða bæinn. Að þessu loknu var haldið á internet búllu þar sem þeir náðu að spjalla við vini og ættingja og að skrifa þessa bloggfærslu.
Á morgun verður síðan ekið til La Paz, en það er áætlað að sú ferð taki um 10 tíma. Gist verður þar í 3 nætur og þar endar fyrsti leggur ferðarinnar.
Frændur þakka sérstaklega öllum sem hafa kommentað á síðuna. Þeim finnst mjög gaman að lesa þessi komment og það er alltaf gott að fá kveðju að heiman.
4 ummæli:
Kæri Bjarni!! Við í Dverghömrunum fylgjumst vel með ævintýrum ykkar og höfum gaman af. Hlökkum nú samt voða mikið að fá þig heim. Bestu kveðjur úr Dverghömrunum
rdkwknúúússs
Geðveikar myndir, og gott að húmorinn er með í ferð hjá ykkur:-) hehe
hlakka til að lesa fleiri færslur, annars allt gott að frétta, og Hildi Ástu finnst ekkert smá gaman að skoða mydnir af frænda sínum, sem kom á hverjum degi í heimsókn, og sést ekki núna..hehe þú mátt búast við því að hún flytji inn til þín þegar þú kemur heim:-) hehe
Sigrún Heba er búin að taka 4 skref, vantar bara herslumuninn að hún fari að labba:-)
kossar og knús og skemmtið ykkur vel
Dröfn
Ótrúlega flottar myndir!!! Kveðja frá klakanum, Þóra Kristín
Veit að blogg er á leiðinni frá ykkur,,,, hlakka svo til :)
Kveðja úr snjónum í Kópavogi,
Ragna.xt
Skrifa ummæli