Veður: 23°C og Skýjað.
Eftir síðustu færslu var haldið í kvöldmat að hætti Argentínumanna (semsagt klukkan 21:30). Þar fengu frændur bestu steik ferðarinnar hingað til á nýstárlegum veitingastað í hjarta Salta. Meðan þeir voru að bíða eftir steikinni gladdi þá kunnulegur söngur Bjarkar úr hljóðkerfi staðarins og hún var að syngja á íslensku. Kom þetta frændum skemmtilega á óvart og ekki skemmdi þetta stemminguna.
Dagurinn eftir var tekinn snemma og vöknuðu menn klukkan 5:45 til að koma sér niður á tjaldstæði. Þar voru hinir ferðalangarir í kulda og rigningu og gátu ekki drullast til að standast tímaáætlun. Frændur sáu mikið eftir auka klukkutímanum sem þeir hefðu geta eitt í þægilegum rúmum á hótlelinu. Haldið var af stað frá Salta um 8 leitið og stefnan tekin á Tupiza í Bólivíu. Á leiðinni breyttist umhverfið mjög eftir því sem farið var hærra. Salta er í 1220 metra hæð en á leiðinni var farið upp í 3600 metra hæð og breyttist umhverfið úr grösugum högum Argentínu í visnar sléttur Bólivíu. Það er skiljanlegt að allt fari hér til fjandans þegar rignir mikið því fólk byggir húsin sín bara í árfarvegum og undir bröttum hlíðum.
Ferðin tók 12 tíma og voru ferðalangar þreyttir mjög við komu til Tupiza. Hótelið í Tupiza reynist ótrúlega flott miðað við kofana sem frændur sáum á leiðinni. Eftir að ferðalangarnir voru búnir að dusta af sér rykið fór hópurinn saman út að borða á einn vafasamasta og ódýrasta veitingastaða sem sögur fara af. Steik með hrísgrjónum og salati kostaði litlar 54 krónur en 700 ml af bjór kostuðu 90 krónur. Allt er alveg fáránlega ódýrt hér miðað við aðra staði sem frændur hafa komið á.
Áætlunin fyrir daginn í dag hljómaði upp á jeppaferð en mótmælendur lokuðu öllum leiðum inn og út úr bænum þannig að ekkert varð úr henni.
Þetta voru nokkuð friðsöm mótmæli þó að einhverjar dýnamítstúbur hafi verið sprengdar í nótt. Verið var að reyna að fá fram bætingu á vegakerfi umhverfis bæinn til að fá fleiri ferðamenn.
Í stað þess að fara í jeppaferðina var bærinn skoðaður og tíminn notaður til að venjast hæðinni. Haldið var upp á smá útsýnispall hér fyrir ofan bæinn en pallurinn er í 2998 metra hæð og voru frændur örlítið dasaðir. Eftir gönguna var haldið á pizza stað til að endurnýja orkubirgðir. síðan var haldið í sólgleraugna innkaupaleiðangur þar sem næsti viðkomustaður eru saltslétturnar miklu. Keypti Ommi sér trukker gleraugu fyrir litlar 200 krónur og einnig keyptu frændur 2 pör handa námumönnum á saltsléttunum þar sem þeir eru margir hverjir að verða blindir vegna ofbirtu.
Það virðist samt vera þó að bærinn líti mjög hrörlega út að tæknin hafi rutt sér leið hingað inn. Það eru allavega 10 internetkaffihús hér með frá 10 til 20 tölvum hvert. Internet sambandið hér er hinsvegar hræðilegt og fyrir þá sem skilja er svartíminn á mbl hérna um 3600ms að jafnaði.
Á morgun verður haldið sem leið liggur til Uyuni sem er lítill ferðamannabær við saltslétturnar.
4 ummæli:
Sælir prinsar.
Mikið er nú notalegt að bíða inn í nóttina eftir bloggi frá ykkur til að lesa fyrir svefninn. Ég hef samt verið rólegri að sofna i kvöld ef ég hefði ekki lesið þetta "Þetta voru nokkuð friðsöm mótmæli þó að einhverjar dýnamítstúbur hafi verið sprengdar í nótt."
Jammm þetta fer að verða eins og með morgunkaffið og blöðin, það þarf að lesa ykkur fyrir svefninn.
Enn og aftur þúsund þakkir fyrir myndirnar sen eru frábærar.
Love, Ragna.
e.s. mikið væri gaman að fá þó ekki væri nema eitt saltkorn frá Bólivíu.
Ármann,
mér finnst alveg nauðsynlegt eftir allt þetta nautaát ykkar frænda að þið hafið veitingahúsahornið þar sem þið rýnið það sem oní ykkur fer.
KK.
Árni Jón.
Snildar hugmynd, MATARHORN OMMA OG BJARNA !!!
Allt um það besta í matargerð í Bólivíu, Argentínu, Brasilíu og víðar. Kemur sér eflaust vel fyrir okkur til lengri tíma litið :)
Eins væri gaman að bjórinn fengi einkunn frá 1-10.
Skítt með svartímann, hvað er jitterið Ommi?
Skrifa ummæli