mánudagur, 4. febrúar 2008

Carnaval 2008

Staðsetning: Rio de Janeiro.
Veður: 29°C og Rigning.


Strax eftir að þeir félagar luku við að skrifa síðustu bloggfærslu var haldið heim á hótel og beðið um upplýsingar hvar næsta churrascaria veitingastað væri að finna. Fyrir þá sem ekki þekkja þetta fyrirbæri, þá er þetta drauma veitingastaður fyrir meat-lovers eins og Omma og Bjarna. Haldið var á stað sem er staddur í Flamengo garðinum við ströndina nálægt hótelinu og þar var borðað kjöt í óhóflegu magni. Einnig gerðu félagarnir vel við sig í drykk.


Kíkt var inn á tvo bari eftir matinn til að svala þorstanum í hitanum. Eftir það var haldið heim á hótel þar sem aðrir ferðalangar voru búnir að koma sér fyrir í lobby-inu og voru að drekka bjór. Þetta fannst þeim félögum sniðug hugmynd og var ákveðið að staldra við og taka nokkra bjóra fyrir svefnin. Endaði þetta ævintýri þannig að ekki var farið að sofa fyrr en uppúr 4 um morguninn.

Farið var á fætur um hálf átta morguninn eftir og voru þeir félagar mættir í morgunmat korter í átta. Ástæða þess hversu árrisulir þeir félagar voru, var að til stóð að fara í útsýnis þyrluflug yfir Rio. Þessu var frestað vegna þess að það var rigning og skýjað úti en ekki vegna þynku. Þótti mönnum það ekki mjög spennandi veður fyrir útsýnisflug og fóru bara aftur að sofa.


Um kvöldið var haldið í Sambódromo þar sem keppni sambaskólana í Ríó fer fram ár hvert. Þetta kvöld sýndu 6 sambaskólar hæfileika sína. Hver skóli hefur um 80 mínútur til að sýna sitt besta og tók dagskráin því ansi langan tíma. Bjarni og Ommi ákváðu að halda heim á hótel uppúr 2 um morgunin þegar 3 af 6 skólum voru búnir að sýna atriðin sín, um var kennt timburmönnum frá barferðum laugardagskvöldsins.

Í dag hélt áfram að rigna. Félagarnir drifu sig í mat á veitingastað á næsta horni frá hótelinu. Þar var borðuð Pizza Portugese (ekki í fyrsta skiptið) og drukknir nokkrir bjórar með. Klukkan 2 var haldið í skoðunarferð í favela (Fátækrarhverfi) í norðurhluta Rio. Kom það þeim félögum á óvart hversu þróuð þessi hverfi eru miðað við væntingar.

Þar sem félagarnir hafa fundið út að það gæti verð allt að mánuður í næstu almennilegu steik hefur verið ákveðið að borða vel næstu 2 daga . Á eftir er stefnan tekin á local veitingastað þar sem gestir steikja kjötið sitt sjálfir.

Á morgun er stefnan sett á að fara í þyrluferðina sem frestast hefur tvisvar og kíkja á Copacabana og Ipanema strendurnar. Myndir af því koma seinna :)

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ú ú ú - geðveikar myndir!!! Vissi að þið mynduð elska churrascaria!!! Kveðja frá klakanum Þóra Kristín

Ragna sagði...

Frábært að heyra af ykkur og ég trúi því að bjórinn sé góður.
Takk fyrir myndirnar, ég er farin að safna mér fyrir ferð.
Love, Ragna Ívars.

Nafnlaus sagði...

Já já, hægt að réttlæta græðgi í mat með alskonar afsökunum... :) Fá ekkert kjöt á næstunni - my ass...

Nafnlaus sagði...

Vorum einmitt ad klara adra steik og erum a copacabana strondinni. Madur ma ekki detta mikid nidur i steikarneyslunni svo ad madur missi ekki mattinn :)

Nafnlaus sagði...

og gleymið ekki að borða mikið af kartöfluflögum til þess að fá öruggleag öll sölt sem þið þurfið

Nafnlaus sagði...

meat meat, all you can eat... það er rétti andinn....

Nafnlaus sagði...

Þið eruð flottastir :)