Veður: 30°C og Sól.
Haldið var af stað frá Rio de Janeiro í gær kl 10.30. Bílstjóri trukksins, Dave, hafði lýst því yfir kvöldið áður að fyrsti dagurinn yrði léttur og það yrði aðeins ekið í ca. 4 stundir. Þessi bjartsýni hans stóðst ekki alveg og voru menn komnir á tjaldstæði í Paraty um kl 19.00.
Eftir að tjöldunum hafði verið komið upp byrjaði að hellirigna, og það hélt áfram fram eftir kvöldi. Tjaldið sem þeir félagar gistu í reyndist nokkuð gott og lak nánast ekki neitt. Þrátt fyrir þetta reyndist erfitt fyrir þá frændur að sofa í hitanum og rakanum. Svefnpokarnir voru notaðir sem koddar og líkaminn baðaður í deet skordýraeitri.
Í morgun var siglt út í flóan fyrir utan Paraty og komið við á nokkrum ströndum til að skemmta sér. Veðrið var yndislegt og er Bjarni nett brunnin eftir daginn í sólinni.
Til stendur að fara út að borða með hópnum í kvöld og svo verða líklegast drukknir einn eða tveir bjórar, svona til að safna kjarki fyrir komandi nótt í tjaldinu. Á morgun er frír dagur. Ekki er búið að plana hvað á að gera nema að Ommi ætlar að vakna fyrir allar aldir til að ná myndum af sólarupprásinni.
Hér fylgir stutt videó úr þyrluferðinni góðu í Rio de Janeiro.
Nýjar myndir koma inn í kvöld eða á morgun.
4 ummæli:
ÆÆ eru nú pöddurna og hitinn erfið að næturlÆagi, þið getið nú huggað ykkur við að þið eru mikið stærri en pöddurnar og það eru nú í lagi að renna aðeins til í hitanum.
Mikið vildi ég vera þarna með ykkur.
Fer ekki vel um ykkur í tjaldinu, drekst það nokkuð sama þegar þið hrjótið báðir, það væri gamann að heyra í ykkur, innfæddir verða öruggla hræddir og halda að einhver skrímsli séu komin til þeirra.
Hafið það gott og bloggið eins oft og þig getið.
Iss piss - sól og sæla hvað!!
Hér er sko alvöru veður. Allt á kafi í snjó og hver lægðin á eftir annarri.
ég ætla að fylgjast með þessu ferðalagi ykkar af einskærri forvitni! Frábærar slóðir :) Vinkona mín benti mér á síðuna ykkar. Farðið varlega en njótið þið lífsins:)
með kveðju,
Ingibjörg
Hvernig er það með ykkur, ekkert tölvusamband?
Maður er orðinn forvitinn að heyra hvað þið hafið verið að gera og sjá síðustu daga.
Skrifa ummæli