Veður: 32°C og Sól.
Ferðin vestur yfir haf gekk mjög vel en einhverstaðar yfir Atlantshafinu náðu þeir félagar að skiptast á vegabréfum. Þetta féll ekki í góðan jarðveg hjá Landamæravörðum Bandaríkjanna sem tóku reyndar ekki eftir neinu fyrr en tölvukerfið kvartaði yfir því að fingraförin pössuðu ekki við vegabréfin. Voru félagarnir færðir með vopnavaldi í hliðarherbergi til yfirheyrslu. Ekki reyndist brotið varða við hegningarlög þannig að félögunum var sleppt fljótlega og fengu þeir að halda för sinni áfram.
Flugið til Sao Paulo gekk eins og í sögu og sváfu þeir félgagar eins og ungabörn nánast alla leið, þökk sé lyfjatöskunni góðu sem by the way enginn tollvörður hefur sýnt áhuga HINGAÐ TIL. Flugið frá Sao Paulo til Rio sem átti ekki að taka nema 35 mín seinkaði um 2,5 tíma vegna þess að ekki náðist að snúa vinstri hreyfilinn í gang. En flugið náði loks enda og félagarnir náðu að hvíla sig vel eftir langa leið á góðu hóteli í Flamengo hverfinu í Rio.
Laugardagurinn var tekinn snemma og voru félagarnir vaknaðir klukkan 7 enda miklir morgunhanar :). Farið var með kláfi upp á Sugarloaf fjall sem er eitt helsta kennileiti hér í borg. Fjallir er 396 metrar og frá því er frábært útsýni yfir Rio. Næst var haldið að lestarstöð þar sem tekin var lest upp að Kristsstyttunni. Þetta var skrautleg og brött lestaferð enda fjallið Corcovado sem styttan á er um 710 metrar á hæð.
Frábær dagur í Rio með en nú er stefnan tekinn á góðann veitingastað þar sem félögunum er farið að langa í steik.
Fleiri myndir er að finna í myndaalbúminu sem linkað er í hér hægramegin á síðunni
4 ummæli:
Hva...engar bjórmyndir frá Rio?
frábært:-)
hvað er málið með vegabréfin, Logi og pabbi lentu líka í veseni á leiðinni til Thailands þar sem skilyrðin þar eru að vegabréfið verður að vera lágmark 6 mánuðir þangað til það rennur út, og pabba vegabréf rennur út eftir 5 mánuði og 29 daga, en þeir rétt sluppu inn í landið:-)
Vera duglegir að skrifa, gaman að lesa hjá ykkur og skoða myndir.
kv. Máni, Dröfn og snúllur
Flottur staður Ríó, það væri ekki leiðilet að vera þarna með ykkur, þetta eru frábærar myndir, það verður gaman að fylgjast með ferðinni hjá ykkur hér á netinu.
Tvö gömul í sveitinni.
já sææææææææl. maður vildi nú gjarna vera í sól og sumaryl núna,í staðinn húkir maður hér á kafi í snó og roki, en þetta er svosem alveg innan skekkjumarka við gamla settið erum á leið til Tenerife eftir rúma viku. farið nú vel með ykkur og Ommi átti ekki bara að vera suðrænir og seyðandi ávextir í ferðinni.
kv
H+H í Skarðshlíð 7
Skrifa ummæli