miðvikudagur, 6. febrúar 2008

Þyrluferð og annað útsýni

Staðsetning: Rio de Janeiro.
Veður: 26°C og Rigning annað slagið


Eftir að hafa sofið út síðustu tvo morgna vegna þreytu og þynku rifu félagarnir sig upp um 7 í morgun og markmiðið var sett á þyrluferð og strandaráp. Vegna portúgölskukunnáttu þeirra þá þurftu þeir að labba smá spöl að þyrlusvæðinu en þetta lukkaðist nokkuð vel að lokum. Félagarnir fengu að fara tveir einir í þyrlunna enda treystu menn farartækinu ekki til að bera mikið meiri þyngd. Þyrluferðin var annars alveg mögnuð og félagarnir fengu alveg geggjaða útsýnisferð.


Eftir þyrluferðina var ákveðið að fara og skoða hvort að Atlantshafið væri eitthvað öðruvísi hérna megin við miðbauginn. Labbað var um Ipanema og Copacabana ströndina og tánum dýft í hafið og dáðst að útsýninu. Gengið var framhjá mörgum götupartíum á leiðinni enda er þetta síðasti dagur carnevale og hver að verða síðastur að missa sig í samba taktinum.

Núna rétt í þessu voru félagarnir að koma úr tveggja tíma siglingu um flóann hér. Var drukkið ótæpilega af bjór á meðan 70's tónlistin tryllti lýðinn.

Á morgun er komið að fyrsta fundi fyrir næstu 9 vikur og þá félagarnir loksins hverjir munu heyra í þeim hroturnar í allan þenann tíma. Félagarnir eru reyndar búnir að hitta slatta af fólki í þessari ferð þannig að þetta lýtur allt vel út. Einnig sést að maður þarf ekki að vera ungur til að fara í þessar ferðir þar sem elsti meðlimurinn í hópnum er 64 ára þannig að félagarnir eru bara rétta að byrja.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Úfff bara kroppar á ferð ykkar um ströndina :) njótið þess að horfa.
Love, Ragna.

Nafnlaus sagði...

"njótið þess að horfa"
hún hefur greinilega ekki mikla trú á ykkur....prove her wrong

Nafnlaus sagði...

Váá geggjaðar myndir...þvílík upplifun..aldrei hafði ég pælt í því að það væri svona fallegt þarna í Ríó.
Kv. Jóhanna og co

Nafnlaus sagði...

Hey fleyri myndir af útsýninu á ströndinni ekki eyða myndum á hús og svoleiðis.Annars góða skemmtun
Haffi