sunnudagur, 24. febrúar 2008

Iguazu til Salta

Staðsetning: Salta.
Veður: 25°C og Léttskýjað.

Haldið var af stað frá Bonito snemma að morgni sunnudags og stefnan tekin á Iguazu fossana. Um var að ræða töluvert langan akstur og þurftu menn því að tjalda á leiðinni. Tjaldað var við hliðina á bensínstöð þannig að frændurnir gátu farið í heita sturtu og haft það gott í tjaldinu. Magn skordýra hafði einnig minnkað töluvert frá fyrri dögum og var Bjarni sérstaklega ánægður með það.

Á mánudeginum var akstrinum haldið áfram og voru menn komnir á hostelið við Iguazu fossana um kl 2. Frændurnir voru snöggir að tryggja sér herbergi með loftkælingu meðan flestir samferðamenn þeirra sættu sig við að húka í tjaldi i brennandi hita. Restin af mánudeginum fór svo í að skoða miðbæ Foz de Iguazu borgina. Þessi borg er svo sem ekki neitt merkileg og lenntu frændur í mestu vandræðum við að skipta peningum. Endaði bæjarferðin á mat og töluverðri bjórdrykkju. Þegar komið var heim á hostelið aftur tóku við drykkjuleikir þar sem aðrir meðlimir í hópnum sátu að sumbli við sundlaugarbakkann.

Þriðjudagurinn fór í að skoða Iguazu fossana Brasilíu megin. Byrjuðu frændur á því að fara í stutta þyrluferð yfir fossana, og urðu fyrir smá vonbrigðum sökum þess hvað þyrlan flaug hátt yfir þeim.


Eftir þyrluflugið var farið inní þjóðgarðinn og fossarnir skoðaðir í návígi. Það er varla hægt að lýsa fossunum, fólk bara verður að skoða þá sjálft.
Um kvöldið var haldið á Tangó sýningu fyrir túrista þar sem ferðalangarnir gæddu sér á frábærum mat og horfðu á eina mest hallærislegu dans og söngvasýningu sem sögur fara af.


Dagin eftir var haldið í dagsferð inní Argentínu og fossarnir skoðaðir þar. Argentínu hliðin á fossunum er mun flottari og aðgengi betra. Frændurnir byrjuðu á því að skella sér í bátsferð sem bauð upp á sturtu undir hluta af fossunum og komu þeir rennblautir þaðan. Restin af deginum var eitt í hraðgöngu til að ná að sjá alla fossana sem eru alveg magnaðir.
Eftir frábærann dag komu ferðalangarnir heim á hótel og fengu óvæntan bónus þegar almyrkvi á tungli varð og voru skilyrði til að skoða og mynda fyrirbærið frábær.


Á fimmtudeginum var síðan ekið aftur yfir landamærin og stefnan tekin á Salta í Argentínu. Ökuleiðin er ca. 1600km og stoppað var 2svar á leiðinni og tjaldað. Fyrri nóttin var mögnuð, tjaldað var inní skógi sem minnti óneitanlega á Íslenskan skóg. Menn kveiktu varðeld og skemmtu sér vel. Þeir frændur voru manna öflugastir og fóru langsíðastir í bólið.

Á laugardeginum var komið til Salta. Þar ákváðu frændurnir að þeir væru búnir að fá nóg af tjöldum í bili og fengu sér hótelherbergi niðri í miðbæ. Um kvöldið fór hópurinn saman út að borða og fengur frændurnir sér steik og rautt með. Eftir þetta var næturlíf Salta skoðað og Bjarni skrölti heim á hótel kl 3 en Ommi ekki fyrr en korter í 7 eftir að hafa stigið trylltann dans í næturklúbbum Salta.

Sunnudagurinn byrjaði rólega, eftir að hafa vaknað við klukkuna kl 10 var tekin ákvörðun um að lulla aðeins lengur (þurfti mikið til að sanfæra Omma), eða til ca. 12. Farið var út og fengur frændur sér hamborgara og bjór. Eftir þetta var Salta skoðuð og síðan farið á netkaffi til að skrifa þessa bloggfærslu og setja inn nýjar myndir.

Í fyrramálið verður lagt af stað inní Bólivíu. Nú styttist óðum í hápunkt ferðarinnar og eru þeir frændur mjög spenntir.

4 ummæli:

OggiJohnson sagði...

Já drengir, þetta er flott. Aldrei skal sparað í mat eða drykk... skál og góða skemmtun.
kv
Öggi.

Nafnlaus sagði...

Lífið er til að njóta þess og það eruð þið svo sannarlega að gera.
Frábært að heyra af ykkur og ég vona að það verði stutt í næsta blogg.
Love, Ragna og co.

e.s. myndirnar eru frábærar !!

Unknown sagði...

Sælir frændur eða bjórbræður. Það er augljóst að þið kunnið að njóta lífsins. Það er líka auðvelt að gera það hér í slabbi og sulli á klakanum. Hlakkar mikið til að lesa blogg um Bólivíu og sjá myndir. Frábær myndataka hjá ykkur þarna leynast greinilega einhverjir hæfileikar. Hef hugann hjá ykkur, have fun og luv ya. Margrét og fjölskylda

Nafnlaus sagði...

Geðveikar myndir, þið eruð alveg að njóta lífsins, sp. um að sleppa brúðkaupi og fara bara í ferð í allt sumar með stelpurnar á bakinu:-) ég veit allaveganna að Máni verður fljótur að samþykkja það:-) hehe
En okkur finnst þetta alveg orðið gott, það vantar alveg þriðja hjólið að hjálpa okkur, enn einu sinni komin skæð magapest á heimilið Sigrúnu tókst bara að smita, Söndru frænku, afa Pétur, Loga, Hildi og Óla og geri aðrir betur. Þannig að þú sleppur við þessa pesti í þetta skiptið..hehe

En hlökkum alveg svakalega til að fá þig heim, þá verður sko slegið upp veislu:-) og biðjum kærlega að heilsa Bjarna..

Hlökkum til að lesa næsta blogg og fá FLEIRI myndir:-)

litla systir og family