miðvikudagur, 6. febrúar 2008

Ferðaplan og Undirbúningur

Staðsetning: Rio de Janeiro.
Veður: 24°C og Rigning

Uppfært: Lagfærði dagsetningar :)

Veðrið hérna í Rio er búið að vera svolítið að stríða ferðalöngunum og það er búið að rigna í næstum allan dag. Það er samt alveg í lagi enda fór dagurinn í dag í að undirbúa brottför, redda peningum og kaupa inn ýmsar nauðsynjar sem maður vill hafa með sér on the road. Það er ekki tekið út með sældinni að fá US dollara hér í borg og bankamenningin hér er fáránleg. Hér nota allir svona Hraðbanka á sterum til að borga reikninga og en ef þú þarft að tala við einhverja manneskju þá þarftu að fara í gegnum öryggishlið og vopnaðir verðir eru allastaðar. Félagarnir eru komnir að þeirri niðurstöðu að þetta sé hálfgert vandræðaland.

Í morgun hittist hópurinn fyrir ferðina í fyrsta skiptið og virðist hann vera bara nokkuð hress. Félagarnir fengu dagskrá fyrir næstu 4 vikur og hljóðar hún svo

7. Feb - Keyrt verður til Paraty sem er sólstrandarstaður suður af Rio.
10. Feb - Lagt af stað í áttina Pantanal og gist í Brotas
11. Feb - Haldið áfram á leið til Pantanal og gist einhverstaðar á leiðinni
12. Feb - Komið til Pantanal og gist í tvær nætur
14. Feb - Keyrt til Bonito og gist þar í 3 nætur
17. Feb - Keyrt á stað til Iguazu fossa og gist einhverstaðar á leiðinni
18. Feb - Komið til Iguazu
19. Feb - Iguazu fossarnir skoðaðir Braselíu megin
20. Feb - Iguazu fossarnir skoðaðir Argentínu megin
21. Feb - Keyrum inn í Argentínu gistum einhverstaðar á leiðinni
22. Feb - Gistum í Saha
23. Feb - Keyrumm í áttina að Salta og gistum einhverstaðar á leiðinni
24. Feb - Komum til Salta
25. Feb - Keyrum inn í Bolivíu og gistum í Tapiza í 2 nætur
27. Feb - Keyrum til Uguni og gistum í 2 nætur
29. Feb - Keyrum til Potosi og gistum þar í 2 nætur
2. Mar - Keyrum til La Paz og gistum þar í 3 nætur.

Nú ætti ákveðnum fjölskyldu meðlimum að líða betur þar sem þeir vita hvar félagarnir verða ;)

Nýjar myndir eru inni á myndasíðunni.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já já okkur líður mun betur, við þekkjum svo vel alla þessa staði sérstaklega í Argentínu og Bólevíu haha, en það verður gaman að sjá myndirnar frá þessum stöðum hér á netinu og fylgjast með ykkur. Það voru að koma fréttir frá Perú um að það væru miklar rigningar þar, það er gott að þið eruð ekki að fara þangað á næstunni.Myndirnar eru frábæra sem þið eruð búnir að taka, lofa mjög góðu um framhaldið. Hafið það gott og skemmtið ykkur vel.

Nafnlaus sagði...

Sælir félagar.

Merkilegt að tíminn sé mánuði á eftir okkur þarna suðurfrá :) gaman að þessu og ég tek það enn og aftur fram að útsýnið er frábært.
Þið eruð í huga okkar oft á dag þessa dagana, hlakka til að lesa frá ykkur í næsta tölvustoppi.

Love, Ragna

Nafnlaus sagði...

Keyrt, keyrt og keyrt? á þetta ekki að vera eitthvað mega bakpokaferðalagsævintýri.. :) skemmtið ykkur vel drengir og ekki drekkja ykkur í deet-inu, það er alveg spurning hvort drepst á undan, maður sjálfur eða flugan af þeim óþverra... :) Kv frá Ghana, Öggi.

Nafnlaus sagði...

Eruð þið ekki aðeins að rugla með mánuðina þ.e. að ferðin byrji 7. jan :) Bara svona að smá ábending...spurning að leggja bjórinn aðeins til hliðar :)
Kv. Jóhanna frænka

Unknown sagði...

sælir strákar. æðislegt hvað gengur vel. leitt þó með þessa rigningu. frábærar myndir og mjög gaman að skoða. fylgjumst stíft með. love ya. Magga, Tryggvi og grísirnir þrír

Nafnlaus sagði...

Flottar myndir, kíkjum á síðuna á hverjum degi:-)
Hildur Ásta skilur ekkert í því hvar Ommi frændi er, en minnir okkur stöðugt á það að við séum í OMMA BÍL:-) hehe
En hlökkum til að heyra meira og sjá mikið fleiri myndir..
knús
Dröfn, Máni og Co