mánudagur, 21. apríl 2008

Galapagos og heimleið

Staðsetning: Reykjavík
Veður: 7°C og Sól.

Afsakið seinkun á bloggi en hér kemur saga síðustu daga ferðarinnar.


Eldsnemma á sunnudaginn 13. apríl var haldið til Galapagos. Flug og ferðalag gengu að óskum og frændur voru lentir á Galapagos um 09:30. Haldið var út á snekkjuna Aida Maria þar sem átti að sigla um Galapagos eyjar næstu vikuna. Strax við komuna niður á bryggju tóku sæ iguana eðlur ásamt sæljónum á móti okkur. Dýrin virtust ekki skipta sér mikið af ferðalöngunum þó að þeir færu mjög nálægt til að taka myndir.

Galapagos er algjör paradís. Dagarnir skiptust í snorkling ferðir og ferðir upp á hinar mismundandi eyjur. Báðar þessar ferðir voru aðallega til að skoða hið frábæra dýralíf sem Galapagos hefur upp á að bjóða en einnig er landslagið mörgum stöðum alveg frábært.


Á landi skoðuðu ferðalangarnir meðal annars sæljón, sæ og land eðlur, risa skjaldbökur og helling af hinum mismunandi fuglum.


Í sjónum syntum við meðal hákarla, sæskjaldbaka, sting skata, mörgæsa og mjög margra tegunda af marglitum hitabeltisfiskum.


Öll dýr hvort sem voru fuglar fiskar eða eðlur voru mjög gæf og voru ekkert að hafa áhyggjur af okkur fólkinu þó að við værum ekki í nema meters fjarlægð og stundum minna. Það var alveg frábært að synda í gegnum torfurnar af fiskunum sem gerðu voða lítið annað en að hliðra sér til nógu mikið þannig að maður kæmist framhjá þeim.


Á bátnum var mjög fínt að búa. Það var eldað handa hópnum 3 stórar máltíðir á dag og kaldur bjór beið þegar menn komu úr síðustu ferðunum. Hópurinn sem við vorum í skiptist í Breta, Þjóðverja, Indverja, Svía og Íslendinga og var þetta alveg frábær hópur. Frændunum þótti mest skrítið að allavega helmingurinn í hópnum voru ekki sérlega vel synntir og sumir ekki neitt. Frændurnir kunnu hinsvegar mjög vel við sig hvort sem er á láði eða legi og fannst þessi ferð hreint út sagt alveg frábær.

Ekki reyndist jafn auðvelt að yfirgefa galapagos og að komast þangað. Frændur lentu í því að flugvélin þeirra bilaði og töfðust þeir í hitanum á galapagos í um 3 tíma og voru ansi fegnir að komast upp á hótel í Quito.

Mánudaginn 21. apríl var svo lagt á stað til New york. Það reyndist ansi langur dagur fyrir frændurna eftir margra tíma bið á flugvöllum og 2 löng flug lentu þeir á áfanga stað um klukkan 22:30. Þessir 2 dagar í New York voru alveg frábærir og góður endir á frábæru fríi.

Þessi ferð hefur verið alveg frábær í alla staði og hefur liðið alveg ótrúlega fljótt.


Nú er bara að safna pening og fríi og fara í næstu ferð ;)

laugardagur, 12. apríl 2008

Staðsetning: Quito - 2743 metrar.

Veður: 13°C og Rigning.

Vikan hjá frændum í Cancun var nú frekar einföld. Eftir að hafa legið í leti á sunnudeginum drifu frændur sig í heilsdags lúxus ferð til Chichen Itza. Ferðin hófst þannig að glæsileg loftkæld rúta pikkaði þá upp á hótelinu rétt fyrir 8 um morgunin. Meðan á akstrinum stóð var boðið uppá morgunmat í rútunni og síðan var stoppað uppúr 10 á markaði nálægt áfangastaðnum. Eftir stoppið á markaðnum var boðið uppá Corona bjór í rútunni og nýttu frændur sér það boð vel.


Í Chichen Itza eltu frændur síðan leiðsögumann í uþb. 2 tíma sem sagði þeim allt um rústirnar og sögu þeirra. Eftir þetta röltu þeir síðan um rústirnar í hitanum og fóru síðan í mat á hóteli við hliðina á rústunum. Þegar uppí rútuna var komið biðu þeirra langþráðir kaldir Corona.

Restina af vikunni einbeittu frændur sér af því að liggja í leti. Ommi var duglegur í sólbaðinu og leit hann út eins og soðinn humar á tímabili. Bjarni afturámóti tók lífinnu rólegar og hélt sig í skugganum yfir miðjan daginn.

Í gær var síðan Cancun kvödd og flogið aftur í gegnum Panama til Quito þar sem Marriott hótelið beið þeirra frænda. Um kvöldið fengu þeir Töru í heimsókn en hún var einmitt að koma frá Galapagos þennan sama dag. Kvöldinu lauk með nokkrum bjórum og Sushi á hótelbarnum.


Í morgun vöknuðu frændur klukkan 10 og drifu sig út í gönguferð með Töru. Skoðaður var gamli bærinn og fannst Bjarna aðeins of margar kirkjur skoðaðar í ferðinni. Gönguferðinni lauk síðan uppúr 2 með þrumum, eldingum, rigningu og hagli. Frændur kvöddu Töru, en hún er að fljúga heim til London í kvöld, og drifu sig heim á hótel. Restin af deginum hefur verið róleg, Ommi slakaði á og Bjarni dreif sig í smá leiðangur.

Í kvöld á svo að fara snemma að sofa vegna þess að flogið verður til Galapagos í fyrramálið kl 7:30. Verða frændur þar um borð í Aida Maria snekkjunni framá sunnudag í næstu viku.

sunnudagur, 6. apríl 2008

Mið-Ameríka???

Staðsetning: Cancun.
Veður: 28°C og Sól.

Jæja, nú er liðin óþægilega langur tími frá síðustu færslu og eru ættingjar og vinir örugglega orðnir órólegir. Það er samt enging ástæða til þess að óttast, frændur eru einfaldlega búnir að vera alltof uppteknir til þess að standa í blogg málum.

Kvöldið eftir síðustu færslu var frekar rólegt. Frændur ásamt fleiri ferðafélögum voru töluvert slappir eftir gleðskap kvöldsins á undan og þessvegna fóru menn einfaldlega snemma í háttinn.


Daginn eftir vöknuðu frændur snemma og stukku uppí Carmen (trukkinn). Ekið var af stað inní Amazon frumskóginn og síðan tekinn bátur niður Napo ánna þar til komið var að skálanum þar sem átti að gista. Napo áin er ein af rúmlega 1100 ám sem renna í Amazon. Hún er reyndar ein af þeim stærri og vatnið sem rennur framhjá skálanum þar sem frændur gistu á eftir að renna tæplega 5000 kílómetra áður en það rennur í Atlantshafið 4 mánuðum seinna.

Þegar búið var að koma sér fyrir í skálunum var haldið í frumskógarferð, þar sem gengið var um regnskóginn, oft í töluverðum bratta og dýralífið skoðað. Þetta var töluverð svaðilför og duttu ferðalangar oft á rassgatið í brattanum og drullunni.


Á sunnudeginum var síðan haldið í aðra frumskógarferð. Bjarni valdi að sleppa ferðinni en Ommi dreif sig af stað. Gengið var í gegnum frumskóginn og endaði gangan með því að það þurfti að vaða niður litla á. Eftir þetta var haldið í dýraathvarf þar sem ýmis áhugaverð dýr voru skoðuð. Um kvöldið fengu frændur sér í glas og slóu síðan í gegn uppúr 4 um morguninn með því að vekja alla sem sváfu í skálunum með hávaða og látum.

Á mánudeginum sváfu frændur út sökum timburmanna og eftir hádegi var haldið í heimsókn í lítin bæ í nágrenninu. Þar heimsóttu menn fiðrildagarð og lærðu allt um fiðrildi. Eftir þetta skoðuðu ferðalangar tréútskurð og keramik.


Á þriðjudag var ekið af stað til Quito. Sumir ferðalangana, þar á meðal Ommi, ákváðu að síðasti ferðadagurinn væri tilefni til þess að detta í það í trukknum. Vakti þetta mismunandi mikla lukku, þar sem þessir aðilar voru orðnir vel drukknir þegar komið var til Quito. Eftir að menn höfðu komið sér fyrir á hótelinu var haldið út í lokamáltíð með hópnum. Frændur entust ekki lengi og voru farnir að sofa í kringum miðnætti.

Á miðvikudag tékkuðu frændur sig út af hótelinu og fluttu sig yfir á Marriott sem er án efa eitt flottasta hótel bæjarins. Þar nutu frændur þess að vera komin í vestræn þægindi og lúxus. Um kvöldið kom Phil síðan í heimsókn og drifu menn sig út á TGI Fridays í mat svoan bara rétt til þess að rifja upp smá vestræna menningu.


Á fimmtudag fóru frændur ásamt 5 öðrum ferðalöngum til Otavalo til að skoða markað sem er að sögn einn sá flottasti í Suður-Ameríku. Á leiðinni var keyrt yfir miðbaug og þótti frændum það ansi merkilegt að þetta var í fyrsta skipti í 2 mánuði sem þeir komu inná norðurhvel jarðar. Markaðurinn í Otavalu reyndist samt ekki standast þær væntingar sem frændur gerðu til hans og lítið varð úr verslun. Um kvöldið fóru frændur síðan út að borða með þeim ferðafélögum sem ennþá voru í Quito.

Dagurinn í gær hófst með því að frændur borðuðu frábæran morgunmat á Marriott og síðan drifu þeir sig í pott, gufu og sund. Eftir það tékkuðu þeir sig út og fengu sér Sushi í hádegismat áður en haldið var útá flugvöll. Frá Quito var flogið í gegnum Panama City til Cancum í Mexíkó. Þar tékkuðu frændur sig inná Hyatt Cancun Caribe Resort hótelið.


Í dag var sofið út og síðan farið í afslöppun við sundlaugina. Ommi baðaði sig í sólinni meðan Bjarni hélt sig undir sólhlífinni og las bók. Eftir þetta fóru frændur uppá herbergi í smá afslöppun en drifu sig síðan á alvöru Amerískt steikhús þar sem þeir borðuð steik og humarhala. Að þessu loknu fóru þeir heim á hótel til að skrifa þessa færslu og setja inn nýjar myndir. Planið er síðan að ljúka kvöldinu á hótelbarnum með einum eða tvemum köldum bjórum.

Það eina sem er búið að plana fyrir næstu viku er heilsdagsferð til að skoða Maya rústir á mánudaginn, að öðru leyti ætla frændur að slappa af og gera sem minnst. Á föstudaginn verður síðan flogið aftur til Quito og svo verður farið til Galapagos á sunnudaginn eftir viku.

Nú er farið að styttast verulega í heimferð og er frændur farið að hlakka töluvert til að komast heim aftur.

föstudagur, 28. mars 2008

Leiðin til Ekvador

Staðsetning: Baños.
Veður: 27°C og Sól.

Á annan í páskum vöknuðu frændur snemma og keyrt var til Punta Sal sem er mjög lítill strandbær nyrst í Perú. Þangað var komið rétt fyrir sólsetur. Frændur komu sér fyrir í nokkuð góðu herbergi og síðan var borðaður matur og slappað af fram eftir kvöldi.


Daginn eftir vöknuðu menn um 10 leitið og drifu sig í sólbað á ströndinni. Þegar steikingu var lokið skelltu frændur sér í sjóinn og léku sér í öldunum. Eftir þetta var borðaður léttur hádegismatur og síðan tekin smá síesta. Eftir blundinn skelltu menn sér aftur í sjóinn og léku sér innan um stökkvandi fiska og fugla. Um kvöldið tóku Dave og Bob sig til og grilluðu ofan í hópin við góðar undirtektir. Eftir grillið smökkuðu menn síðan vatnsmelónu sem Bob hafði fyllt með vodka og féll hún mismunandi vel í kramið. Bjarni var frekar óheppinn með skordýrin og var bitinn 8 sinnum í vinstra handarbak sem varð til þess að hendin blés töluvert út en hún er farin að lagast núna.

Á miðvikudag var keyrt af stað til Ekvador. Þetta var langur dagur og voru menn ekki komnir til Cuenca í Ekvador fyrr en eftir myrkur. Þar var farið á Sushi veitingastað og borðuðu menn góðan mat og drukku bjór. Ekki var tekið á því vegna þess að dagurinn eftir átti að vera mjög langur.

Í gær var lagt af stað kl 5:00 til Banos. Búist var við að ferðin myndi taka ca. 14 tíma vegna þess að einhverjir vegir á leiðinni voru lokaðir. Þetta reyndist ekki vera rétt og voru menn komnir á áfangastað uppúr fjögur. Fyrir ofan Banos er eldfjall sem er búið að vera að spúa ösku síðan 1999 og gýs annaðslagið. Þetta gerir það að verkum að ekki er talið öruggt að gista í bænum sjálfum. Gististaðurinn sem ferðalangarnir eru á er uþb. 20 mínútur fyrir utan sjálfan bæin og aðeins fjær sjálfu eldfjallinu.


Í gærkvöldi var boðið uppá flotta grillveislu og dönsuðu menn síðan uppá borðum fram eftir nóttu. Einn af ferðafélögum frænda á afmæli í dag og var því fagnað mikið strax uppúr miðnætti.

Í dag vöknuðu frændur smá timraðir uppúr 10 og drifu sig í bæinn til að fá sér einhvern mat og komast á internetbúllu. Seinnipartin er stefnan sett á að fara nær eldfjallinu og reyna að ná góðum myndum.

Á morgun verður síðan keyrt inní Amazon skógin og gist þar í 3 nætur. Síðan verður keyrt til Quito á þriðjudag og lýkur Dragoman ferðinni þar á miðvikudagsmorgun.

mánudagur, 24. mars 2008

Kyrrahafsstrond Peru

Staðsetning: Huanchaco.
Veður: 30°C og Sól.

A midvikudag var lagt af stad snemma fra Arequipa og keyrt til Nazca. Thad helsta sem gerdist i thessari ferd var ad keyrt var ur 2380 metra haed og nidur ad Kyrrahafinu. Eru frændur sem sagt búnir að keyra yfir Suður Ameríku þvera. Komid var til Nazca eftir myrkur og eldadur matur ur trukknum a tjaldstaedinu. Eftir ad buid var ad innbyrda matinn og nokkra bjora foru menn ad sofa.


A fimmtudag voknudu fraendur snemma og gengu yfir gotuna ad flugvellinum i Nazca. Thar foru menn i 25 minutna flug i Cessnu yfir Nazca linurnar. Er ohaett ad segja ad menn hafi ekki ordid fyrir vonbrigdum i theirri ferd. Eftir flugid var utbuinn morgunmatur og sidan farid og skodadur gamall grafreitur thar sem var haegt ad skoda mumiur sidan fyrir tima Inkana. Eftir thetta var lagt af stad til Ica.
Thegar komið var til Ica blasti vid fraendum risavaxnar sandöldur vid borgina. Um kvoldid kom folk ser fyrir i litilli vin med sandoldur a bada boga. Thar drukku menn fram eftir kvoldi og skemmtu ser vel. Thegar threytan nadi taki a folki, tha voru svefnpokarnir gripnir fram og sofid undir berum himni, ymist a jordinni eda i hengirumum.

Föstudagurinn langi byrjaði vel. Ferðalöngunum bauðst að þeysa um sandöldurnar í littlum Dune buggy bíl og fara svo og renna sér niður öldurnar á brettum. Þetta reyndist alveg geggjað gaman og frábær leið til þessað losna við þynkuna. Eftir sandöldurnar var haldið áleiðis til Paracas. Thadan var farid i siglingu uti eyjar thar sem menn sau Hofrunga, Saeljon, Morgaesir og allskonar fugla. Thegar komid var i land var farid a veitingastad vid strondina og bordadur hadegismatur. Ad honum loknum var keyrt til Lima og komu menn thangad eftir myrkur.


I gaer voknudu menn snemma og logdu af stad fra Lima til Huanchaco. Thetta var langur dagur thar sem keyrt var medfram kyrrahafsstrond Peru. I huanchaco var gist a tjaldstaedi en fraendur akvadu ad uppgreida uppi hostel og sau ekki eftir thvi. Annar fararstjorinn, Dave, atti afmaeli og var farid ut ad borda til ad halda uppa thad.


I dag skodadi hopurinn Chan Chan sem eru ca. 1500 ara gamlar rustir af staerstu husum byggdum ur leirmursteinum sem thekkjast. Skodudu fraendur adeins brot af thessu stora svaedi og thotti mikid til koma. Eftir thetta var skodadur Luna pyramidinn sem byggdur var af menningum sem komu a undan Inkunum og thar var haegt ad skoda litrikar veggjaskreytingar. Eftir thetta var farid i verslunarferd fyrir trukkinn og sidan haldid a netkaffi til ad skrifa thessa faerslu.

A morgun verdur lagt af stad kl 6:00 og keyrt til Punta Sal. Nu er farid ad styttast ansi mikid i lok hopferdarinnar og er fraendur farid ad hlakka toluvert til ad komast til Cancun og Galapagos.