þriðjudagur, 26. febrúar 2008

Komnir til Bólivíu

Staðsetning: Tupiza - 2850 metrar.
Veður: 23°C og Skýjað.

Eftir síðustu færslu var haldið í kvöldmat að hætti Argentínumanna (semsagt klukkan 21:30). Þar fengu frændur bestu steik ferðarinnar hingað til á nýstárlegum veitingastað í hjarta Salta. Meðan þeir voru að bíða eftir steikinni gladdi þá kunnulegur söngur Bjarkar úr hljóðkerfi staðarins og hún var að syngja á íslensku. Kom þetta frændum skemmtilega á óvart og ekki skemmdi þetta stemminguna.

Dagurinn eftir var tekinn snemma og vöknuðu menn klukkan 5:45 til að koma sér niður á tjaldstæði. Þar voru hinir ferðalangarir í kulda og rigningu og gátu ekki drullast til að standast tímaáætlun. Frændur sáu mikið eftir auka klukkutímanum sem þeir hefðu geta eitt í þægilegum rúmum á hótlelinu. Haldið var af stað frá Salta um 8 leitið og stefnan tekin á Tupiza í Bólivíu. Á leiðinni breyttist umhverfið mjög eftir því sem farið var hærra. Salta er í 1220 metra hæð en á leiðinni var farið upp í 3600 metra hæð og breyttist umhverfið úr grösugum högum Argentínu í visnar sléttur Bólivíu. Það er skiljanlegt að allt fari hér til fjandans þegar rignir mikið því fólk byggir húsin sín bara í árfarvegum og undir bröttum hlíðum.


Ferðin tók 12 tíma og voru ferðalangar þreyttir mjög við komu til Tupiza. Hótelið í Tupiza reynist ótrúlega flott miðað við kofana sem frændur sáum á leiðinni. Eftir að ferðalangarnir voru búnir að dusta af sér rykið fór hópurinn saman út að borða á einn vafasamasta og ódýrasta veitingastaða sem sögur fara af. Steik með hrísgrjónum og salati kostaði litlar 54 krónur en 700 ml af bjór kostuðu 90 krónur. Allt er alveg fáránlega ódýrt hér miðað við aðra staði sem frændur hafa komið á.

Áætlunin fyrir daginn í dag hljómaði upp á jeppaferð en mótmælendur lokuðu öllum leiðum inn og út úr bænum þannig að ekkert varð úr henni.
Þetta voru nokkuð friðsöm mótmæli þó að einhverjar dýnamítstúbur hafi verið sprengdar í nótt. Verið var að reyna að fá fram bætingu á vegakerfi umhverfis bæinn til að fá fleiri ferðamenn.


Í stað þess að fara í jeppaferðina var bærinn skoðaður og tíminn notaður til að venjast hæðinni. Haldið var upp á smá útsýnispall hér fyrir ofan bæinn en pallurinn er í 2998 metra hæð og voru frændur örlítið dasaðir. Eftir gönguna var haldið á pizza stað til að endurnýja orkubirgðir. síðan var haldið í sólgleraugna innkaupaleiðangur þar sem næsti viðkomustaður eru saltslétturnar miklu. Keypti Ommi sér trukker gleraugu fyrir litlar 200 krónur og einnig keyptu frændur 2 pör handa námumönnum á saltsléttunum þar sem þeir eru margir hverjir að verða blindir vegna ofbirtu.

Það virðist samt vera þó að bærinn líti mjög hrörlega út að tæknin hafi rutt sér leið hingað inn. Það eru allavega 10 internetkaffihús hér með frá 10 til 20 tölvum hvert. Internet sambandið hér er hinsvegar hræðilegt og fyrir þá sem skilja er svartíminn á mbl hérna um 3600ms að jafnaði.

Á morgun verður haldið sem leið liggur til Uyuni sem er lítill ferðamannabær við saltslétturnar.

sunnudagur, 24. febrúar 2008

Iguazu til Salta

Staðsetning: Salta.
Veður: 25°C og Léttskýjað.

Haldið var af stað frá Bonito snemma að morgni sunnudags og stefnan tekin á Iguazu fossana. Um var að ræða töluvert langan akstur og þurftu menn því að tjalda á leiðinni. Tjaldað var við hliðina á bensínstöð þannig að frændurnir gátu farið í heita sturtu og haft það gott í tjaldinu. Magn skordýra hafði einnig minnkað töluvert frá fyrri dögum og var Bjarni sérstaklega ánægður með það.

Á mánudeginum var akstrinum haldið áfram og voru menn komnir á hostelið við Iguazu fossana um kl 2. Frændurnir voru snöggir að tryggja sér herbergi með loftkælingu meðan flestir samferðamenn þeirra sættu sig við að húka í tjaldi i brennandi hita. Restin af mánudeginum fór svo í að skoða miðbæ Foz de Iguazu borgina. Þessi borg er svo sem ekki neitt merkileg og lenntu frændur í mestu vandræðum við að skipta peningum. Endaði bæjarferðin á mat og töluverðri bjórdrykkju. Þegar komið var heim á hostelið aftur tóku við drykkjuleikir þar sem aðrir meðlimir í hópnum sátu að sumbli við sundlaugarbakkann.

Þriðjudagurinn fór í að skoða Iguazu fossana Brasilíu megin. Byrjuðu frændur á því að fara í stutta þyrluferð yfir fossana, og urðu fyrir smá vonbrigðum sökum þess hvað þyrlan flaug hátt yfir þeim.


Eftir þyrluflugið var farið inní þjóðgarðinn og fossarnir skoðaðir í návígi. Það er varla hægt að lýsa fossunum, fólk bara verður að skoða þá sjálft.
Um kvöldið var haldið á Tangó sýningu fyrir túrista þar sem ferðalangarnir gæddu sér á frábærum mat og horfðu á eina mest hallærislegu dans og söngvasýningu sem sögur fara af.


Dagin eftir var haldið í dagsferð inní Argentínu og fossarnir skoðaðir þar. Argentínu hliðin á fossunum er mun flottari og aðgengi betra. Frændurnir byrjuðu á því að skella sér í bátsferð sem bauð upp á sturtu undir hluta af fossunum og komu þeir rennblautir þaðan. Restin af deginum var eitt í hraðgöngu til að ná að sjá alla fossana sem eru alveg magnaðir.
Eftir frábærann dag komu ferðalangarnir heim á hótel og fengu óvæntan bónus þegar almyrkvi á tungli varð og voru skilyrði til að skoða og mynda fyrirbærið frábær.


Á fimmtudeginum var síðan ekið aftur yfir landamærin og stefnan tekin á Salta í Argentínu. Ökuleiðin er ca. 1600km og stoppað var 2svar á leiðinni og tjaldað. Fyrri nóttin var mögnuð, tjaldað var inní skógi sem minnti óneitanlega á Íslenskan skóg. Menn kveiktu varðeld og skemmtu sér vel. Þeir frændur voru manna öflugastir og fóru langsíðastir í bólið.

Á laugardeginum var komið til Salta. Þar ákváðu frændurnir að þeir væru búnir að fá nóg af tjöldum í bili og fengu sér hótelherbergi niðri í miðbæ. Um kvöldið fór hópurinn saman út að borða og fengur frændurnir sér steik og rautt með. Eftir þetta var næturlíf Salta skoðað og Bjarni skrölti heim á hótel kl 3 en Ommi ekki fyrr en korter í 7 eftir að hafa stigið trylltann dans í næturklúbbum Salta.

Sunnudagurinn byrjaði rólega, eftir að hafa vaknað við klukkuna kl 10 var tekin ákvörðun um að lulla aðeins lengur (þurfti mikið til að sanfæra Omma), eða til ca. 12. Farið var út og fengur frændur sér hamborgara og bjór. Eftir þetta var Salta skoðuð og síðan farið á netkaffi til að skrifa þessa bloggfærslu og setja inn nýjar myndir.

Í fyrramálið verður lagt af stað inní Bólivíu. Nú styttist óðum í hápunkt ferðarinnar og eru þeir frændur mjög spenntir.

fimmtudagur, 21. febrúar 2008

Iguazu fossar

Nyjar myndir komnar inn. Hofum ekki tima til ad blogga. Gerum thad i Salta i Argentinu eftir ca 4. daga.

sunnudagur, 17. febrúar 2008

Loksins loksins

Staðsetning: Bonito.
Veður: 30+°C og Sól.

Nu er lidin vika fra sidasta bloggposti og fraendurninr loksins komnir i agaetis netsamband.

Ommi var duglegur og vaknadi fyrir solaruppras med Phil til ad na godum myndum. Eiddu their felagar nokkrun klukkutimum i ad na godum myndum i Paraty og nokkrar af teim eru komnar a netid.

Ferdin til Pantanal gekk bara agaetlega midad vid ad keyrt var i ruma 2 daga og voru longu dagarndir um 12 timar. Fyrstu nottina var gist a tjaldstaedi i bae sem heitir Brotas og tad var mjog fint. Tar var haegt ad fara i sund og sturtu. Tegar leid a naesta dag ta vonudu ferdalangarnir ad gist yrdi a tjaldstaedi en tegar trukkurinn nam stadar uti i vegarkannti einvherstadar tar sem enginn vissi hvar hann var hvarf su von. Ut var farid og tjaldad innanum flugur og maura og ur vard bara agaetis tjaldstaedi.


Endurnaerdir eftir 5 tima naetursvefn med maurunum var haldid af stad aleidis til Pantanal. Komid var tangad um hadegi og maetti ferdalongunum tar godur matur og flott adstada. Farid var i siglingu um fenjasvaedid en Pantanal er staersta fenjasvaedi heims. Tar var reynt ad veida Piranha fiska en tad gekk heldur illa og nadust bara trir fiskar a land. Svo vel vill til ad einn af ferdafelogum theirra fraenda er atvinnuljosmyndari. Eins og menn geta imyndad ser tha eru their fraendur mjog anaegdir med thad. Hann er mjog orlatur a ad lana linsurnar sinar og notfaerir Ommi ser thad ospart. Linsurnar sem Ommi hefur fengid lanadar eru Canon 70-200 L F2.8 IS og 500 L F4 IS.

Um kvoldid var haldid i naetur safari. Tad helsta sem gerdist tar ad Bjarni var etinn lifandi af endalaust morgum poddum sem voru a ferli um fenjasvaedid. Reyndar sast lika til Ocelot kattar og helling af odrum dyrum sem voru a vappi.

Naesti dagur var tekinn rolega og svafu felagarnir framm eftir og smelltu ser sidan i kano ferd um fenjasvaedid. Tad reyndist vera alveg magnad og sast fullt af dyrum tar. Um kvoldid var svo haldin stor og mikil grillveisla tar sem bjor og vin flaeddi um allt. Gledskapurinn endadi med skinny dipping i sundlauginni.

Sidasti dagurinn i Pantanal byrjadi heldur erfidlega sokum ohoflegrar drykkju kvoldid adur. Haldid var i safari i dagsbyrtu til ad reyna ad sja fleiri dyr.
Eftir tetta var haldid af stad til Bonito.


Eftir um 5 tima ferd eftir handonytum vegi var komid til Bonito. Thar tjekkudu menn sig inn a adal hostel baejarins og svo var farid ut ad borda thar sem their fraendur fengu ser Capivara (staersta nagdyr i heimi) og Cayman (krokodill). Thessi matur var nu ekkert til ad hropa hurra fyrir en fannst monnum gaman ad profa thetta.


Daginn eftir var haldid i hellaskodun i Blue Lake hellinn og thar var klifrad nidur 130 metra ofan i jordina til ad skoda dropasteina og blatt vatn i botninum a hellinum. Eftir hadegi foru menn ad snorkla i linda sem var otrulega taer. I henni var otrulegt magn af flottum fiskum.

I dag var haldid i fossaskodun. Thar var gengid medfram a, og synt i henni og stokkid fram af fossum. Thar syntu menn lika inni hella sem myndast hafa undir fossunum.

Planid a morgun er ad keyra aleidis til Iguazu fossana en gist verdur einhversstadar a leidinni.

föstudagur, 8. febrúar 2008

Paraty: Hitabeltisrigning og Sól

Staðsetning: Paraty.
Veður: 30°C og Sól.

Haldið var af stað frá Rio de Janeiro í gær kl 10.30. Bílstjóri trukksins, Dave, hafði lýst því yfir kvöldið áður að fyrsti dagurinn yrði léttur og það yrði aðeins ekið í ca. 4 stundir. Þessi bjartsýni hans stóðst ekki alveg og voru menn komnir á tjaldstæði í Paraty um kl 19.00.

Eftir að tjöldunum hafði verið komið upp byrjaði að hellirigna, og það hélt áfram fram eftir kvöldi. Tjaldið sem þeir félagar gistu í reyndist nokkuð gott og lak nánast ekki neitt. Þrátt fyrir þetta reyndist erfitt fyrir þá frændur að sofa í hitanum og rakanum. Svefnpokarnir voru notaðir sem koddar og líkaminn baðaður í deet skordýraeitri.

Í morgun var siglt út í flóan fyrir utan Paraty og komið við á nokkrum ströndum til að skemmta sér. Veðrið var yndislegt og er Bjarni nett brunnin eftir daginn í sólinni.

Til stendur að fara út að borða með hópnum í kvöld og svo verða líklegast drukknir einn eða tveir bjórar, svona til að safna kjarki fyrir komandi nótt í tjaldinu. Á morgun er frír dagur. Ekki er búið að plana hvað á að gera nema að Ommi ætlar að vakna fyrir allar aldir til að ná myndum af sólarupprásinni.

Hér fylgir stutt videó úr þyrluferðinni góðu í Rio de Janeiro.



Nýjar myndir koma inn í kvöld eða á morgun.

miðvikudagur, 6. febrúar 2008

Ferðaplan og Undirbúningur

Staðsetning: Rio de Janeiro.
Veður: 24°C og Rigning

Uppfært: Lagfærði dagsetningar :)

Veðrið hérna í Rio er búið að vera svolítið að stríða ferðalöngunum og það er búið að rigna í næstum allan dag. Það er samt alveg í lagi enda fór dagurinn í dag í að undirbúa brottför, redda peningum og kaupa inn ýmsar nauðsynjar sem maður vill hafa með sér on the road. Það er ekki tekið út með sældinni að fá US dollara hér í borg og bankamenningin hér er fáránleg. Hér nota allir svona Hraðbanka á sterum til að borga reikninga og en ef þú þarft að tala við einhverja manneskju þá þarftu að fara í gegnum öryggishlið og vopnaðir verðir eru allastaðar. Félagarnir eru komnir að þeirri niðurstöðu að þetta sé hálfgert vandræðaland.

Í morgun hittist hópurinn fyrir ferðina í fyrsta skiptið og virðist hann vera bara nokkuð hress. Félagarnir fengu dagskrá fyrir næstu 4 vikur og hljóðar hún svo

7. Feb - Keyrt verður til Paraty sem er sólstrandarstaður suður af Rio.
10. Feb - Lagt af stað í áttina Pantanal og gist í Brotas
11. Feb - Haldið áfram á leið til Pantanal og gist einhverstaðar á leiðinni
12. Feb - Komið til Pantanal og gist í tvær nætur
14. Feb - Keyrt til Bonito og gist þar í 3 nætur
17. Feb - Keyrt á stað til Iguazu fossa og gist einhverstaðar á leiðinni
18. Feb - Komið til Iguazu
19. Feb - Iguazu fossarnir skoðaðir Braselíu megin
20. Feb - Iguazu fossarnir skoðaðir Argentínu megin
21. Feb - Keyrum inn í Argentínu gistum einhverstaðar á leiðinni
22. Feb - Gistum í Saha
23. Feb - Keyrumm í áttina að Salta og gistum einhverstaðar á leiðinni
24. Feb - Komum til Salta
25. Feb - Keyrum inn í Bolivíu og gistum í Tapiza í 2 nætur
27. Feb - Keyrum til Uguni og gistum í 2 nætur
29. Feb - Keyrum til Potosi og gistum þar í 2 nætur
2. Mar - Keyrum til La Paz og gistum þar í 3 nætur.

Nú ætti ákveðnum fjölskyldu meðlimum að líða betur þar sem þeir vita hvar félagarnir verða ;)

Nýjar myndir eru inni á myndasíðunni.

Þyrluferð og annað útsýni

Staðsetning: Rio de Janeiro.
Veður: 26°C og Rigning annað slagið


Eftir að hafa sofið út síðustu tvo morgna vegna þreytu og þynku rifu félagarnir sig upp um 7 í morgun og markmiðið var sett á þyrluferð og strandaráp. Vegna portúgölskukunnáttu þeirra þá þurftu þeir að labba smá spöl að þyrlusvæðinu en þetta lukkaðist nokkuð vel að lokum. Félagarnir fengu að fara tveir einir í þyrlunna enda treystu menn farartækinu ekki til að bera mikið meiri þyngd. Þyrluferðin var annars alveg mögnuð og félagarnir fengu alveg geggjaða útsýnisferð.


Eftir þyrluferðina var ákveðið að fara og skoða hvort að Atlantshafið væri eitthvað öðruvísi hérna megin við miðbauginn. Labbað var um Ipanema og Copacabana ströndina og tánum dýft í hafið og dáðst að útsýninu. Gengið var framhjá mörgum götupartíum á leiðinni enda er þetta síðasti dagur carnevale og hver að verða síðastur að missa sig í samba taktinum.

Núna rétt í þessu voru félagarnir að koma úr tveggja tíma siglingu um flóann hér. Var drukkið ótæpilega af bjór á meðan 70's tónlistin tryllti lýðinn.

Á morgun er komið að fyrsta fundi fyrir næstu 9 vikur og þá félagarnir loksins hverjir munu heyra í þeim hroturnar í allan þenann tíma. Félagarnir eru reyndar búnir að hitta slatta af fólki í þessari ferð þannig að þetta lýtur allt vel út. Einnig sést að maður þarf ekki að vera ungur til að fara í þessar ferðir þar sem elsti meðlimurinn í hópnum er 64 ára þannig að félagarnir eru bara rétta að byrja.

mánudagur, 4. febrúar 2008

Carnaval 2008

Staðsetning: Rio de Janeiro.
Veður: 29°C og Rigning.


Strax eftir að þeir félagar luku við að skrifa síðustu bloggfærslu var haldið heim á hótel og beðið um upplýsingar hvar næsta churrascaria veitingastað væri að finna. Fyrir þá sem ekki þekkja þetta fyrirbæri, þá er þetta drauma veitingastaður fyrir meat-lovers eins og Omma og Bjarna. Haldið var á stað sem er staddur í Flamengo garðinum við ströndina nálægt hótelinu og þar var borðað kjöt í óhóflegu magni. Einnig gerðu félagarnir vel við sig í drykk.


Kíkt var inn á tvo bari eftir matinn til að svala þorstanum í hitanum. Eftir það var haldið heim á hótel þar sem aðrir ferðalangar voru búnir að koma sér fyrir í lobby-inu og voru að drekka bjór. Þetta fannst þeim félögum sniðug hugmynd og var ákveðið að staldra við og taka nokkra bjóra fyrir svefnin. Endaði þetta ævintýri þannig að ekki var farið að sofa fyrr en uppúr 4 um morguninn.

Farið var á fætur um hálf átta morguninn eftir og voru þeir félagar mættir í morgunmat korter í átta. Ástæða þess hversu árrisulir þeir félagar voru, var að til stóð að fara í útsýnis þyrluflug yfir Rio. Þessu var frestað vegna þess að það var rigning og skýjað úti en ekki vegna þynku. Þótti mönnum það ekki mjög spennandi veður fyrir útsýnisflug og fóru bara aftur að sofa.


Um kvöldið var haldið í Sambódromo þar sem keppni sambaskólana í Ríó fer fram ár hvert. Þetta kvöld sýndu 6 sambaskólar hæfileika sína. Hver skóli hefur um 80 mínútur til að sýna sitt besta og tók dagskráin því ansi langan tíma. Bjarni og Ommi ákváðu að halda heim á hótel uppúr 2 um morgunin þegar 3 af 6 skólum voru búnir að sýna atriðin sín, um var kennt timburmönnum frá barferðum laugardagskvöldsins.

Í dag hélt áfram að rigna. Félagarnir drifu sig í mat á veitingastað á næsta horni frá hótelinu. Þar var borðuð Pizza Portugese (ekki í fyrsta skiptið) og drukknir nokkrir bjórar með. Klukkan 2 var haldið í skoðunarferð í favela (Fátækrarhverfi) í norðurhluta Rio. Kom það þeim félögum á óvart hversu þróuð þessi hverfi eru miðað við væntingar.

Þar sem félagarnir hafa fundið út að það gæti verð allt að mánuður í næstu almennilegu steik hefur verið ákveðið að borða vel næstu 2 daga . Á eftir er stefnan tekin á local veitingastað þar sem gestir steikja kjötið sitt sjálfir.

Á morgun er stefnan sett á að fara í þyrluferðina sem frestast hefur tvisvar og kíkja á Copacabana og Ipanema strendurnar. Myndir af því koma seinna :)

laugardagur, 2. febrúar 2008

Komnir til Rio

Staðsetning: Rio de Janeiro.
Veður: 32°C og Sól.

Ferðin vestur yfir haf gekk mjög vel en einhverstaðar yfir Atlantshafinu náðu þeir félagar að skiptast á vegabréfum. Þetta féll ekki í góðan jarðveg hjá Landamæravörðum Bandaríkjanna sem tóku reyndar ekki eftir neinu fyrr en tölvukerfið kvartaði yfir því að fingraförin pössuðu ekki við vegabréfin. Voru félagarnir færðir með vopnavaldi í hliðarherbergi til yfirheyrslu. Ekki reyndist brotið varða við hegningarlög þannig að félögunum var sleppt fljótlega og fengu þeir að halda för sinni áfram.

Flugið til Sao Paulo gekk eins og í sögu og sváfu þeir félgagar eins og ungabörn nánast alla leið, þökk sé lyfjatöskunni góðu sem by the way enginn tollvörður hefur sýnt áhuga HINGAÐ TIL. Flugið frá Sao Paulo til Rio sem átti ekki að taka nema 35 mín seinkaði um 2,5 tíma vegna þess að ekki náðist að snúa vinstri hreyfilinn í gang. En flugið náði loks enda og félagarnir náðu að hvíla sig vel eftir langa leið á góðu hóteli í Flamengo hverfinu í Rio.


Laugardagurinn var tekinn snemma og voru félagarnir vaknaðir klukkan 7 enda miklir morgunhanar :). Farið var með kláfi upp á Sugarloaf fjall sem er eitt helsta kennileiti hér í borg. Fjallir er 396 metrar og frá því er frábært útsýni yfir Rio. Næst var haldið að lestarstöð þar sem tekin var lest upp að Kristsstyttunni. Þetta var skrautleg og brött lestaferð enda fjallið Corcovado sem styttan á er um 710 metrar á hæð.

Frábær dagur í Rio með en nú er stefnan tekinn á góðann veitingastað þar sem félögunum er farið að langa í steik.

Fleiri myndir er að finna í myndaalbúminu sem linkað er í hér hægramegin á síðunni